Verði að hætta að benda hver á annan Agnar Már Másson skrifar 23. júlí 2026 23:10 Jón Bjarki Bentsson er aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Vísir/Ívar Verðbólga mælist 5,3 prósent og allt bendir til þess að verðbólguskilyrði kjarasamninga standist ekki í september. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir að aðilar vinnumarkaðarins verði að hætta að benda hver á annan og taka höndum saman til að draga úr verðbólgu í landinu.
Í nýrri mælingu Hagstofunnar kemur fram að ársverðbólga hafi aukist um 0,1 prósentustig milli mánaða og stendur í 5,3 prósentum í júlí. Að óbreyttu verður verðbólga yfir 4,7 prósenta viðmiði kjarasamninga í september og þá heimilt að endurskoða þá. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir margt spila inn í þessa hækkun. Þó að sumarútsölur og lækkun á eldsneytisverði hafi lækkandi áhrif á verðbólguna, hækkuðu flugfargjöld til útlanda á sama tíma um rúm 15 prósent og kostnaður vegna búsetu um 0,6 prósent. „Það eru kostnaðarhækkanir hjá innlendum fyrirtækjum sem þau eru að velta út í verðlagið þannig að almennt vöruverð er jafnt og þétt að þokast upp á við, nema matarverð, sem stóð í stað í verði í júní. Það er jákvætt að sjá.“ Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra sagði við Vísi í dag að góðu fréttirnar væru þær að innlend verðbólga væri á útleið. Þetta segir Jón Bjarki ekki alveg rétt, þó að áhrif af húsnæðiskostnaði fari dvínandi. „Þar er hún aðeins að síga niður á við en þar er bitamunurinn ekki fjár. Það þarf miklu meira til í þeim lið til þess að verðbólga fari niður í ásættanlegan takt.“ Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði við Vísi í morgun að þó svo að verðbólga væri umfram viðmið í kjarasamningum hefði kaupmáttur haldist. Jón segir nokkuð til í því; laun hafi að meðaltali hækkað töluvert umfram þau 3,5 prósent á ári sem gert var ráð fyrir í kjarasamningum. „Miðað við nýjustu mælingar þá hafa laun hækkað meira heldur en verðlag.“ Til þess að ná niður verðbólgu segir Jón að aðilar á vinnumarkaði þurfi aftur á móti að hætta að benda hver á annan, enda sé ekki hægt að smætta orsakir verðbólgunnar niður í eitthvert eitt atriði. Hann segir að aðilar vinnumarkaðarins verði að taka höndum saman. „Og horfa lengra fram í tíma en bara á kaupmátt, hagnað eða rekstur hins opinbera næstu misserin og leggja meiri áherslu á hvernig þeir vilja sjá samspil hagstærðanna og stærða á borð við verðbólgu og vexti líta út undir lok áratugarins. Af því að það er það sem skiptir máli á endanum: hvernig þetta þróast til lengri tíma.“
Verðlag Kjaramál Mest lesið Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verði að hætta að benda hver á annan Laun hækka umfram verðbólgu Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Verðbólga eykst enn Drægnitölurnar komu út í plús Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Kalla inn fæðubótarefni Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Gullslegið klósett Bakkavararbræðra flottast Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Sjá meira