Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Sigurgeir Þorkelsson skrifar 23. júlí 2026 17:40 Gissur Kolbeinsson er sviðsstjóri vettvangseftirlits hjá MAST. Matvælastofnun (MAST) telur nauðsynlegt að bregðast við og koma á framfæri skýringum vegna meintra annmarka á skráningu eftirlitsgagna vegna hvalveiða. Vísir birti fyrr í dag frétt upp úr yfirlýsingu Hvalavina, samtaka sem berjast gegn hvalveiðum.
Útskýrt er í skriflegri yfirlýsingu að ekki sé hægt að hafa eftirlitsmann á vegum MAST um borð í hvalveiðiskipum þegar hver einn og einasti hvalur er veiddur. Eftirlit með hvalveiðum fari þegar út fyrir það sem tíðkast annars staðar þar sem leitast er við að tryggja dýravelferð. „Það er rétt að undirstrika að þekja þessa eftirlits er mjög há og í raun mun hærri en almennt gengur og gerist í öðru dýravelferðareftirliti einmitt á grundvelli áhættumats stofnunarinnar,“ segir Gissur Kolbeinsson, sviðsstjóri vettvangseftirlits hjá MAST, í skriflegri yfirlýsingu. Tekið er fram að mikilvægt sé að halda því til haga að eftirlit með velferð dýra við aflífun langreyða sé áhættumiðað eins og allt annað eftirlit hjá MAST samkvæmt ákvæðum laga um velferð dýra. „Áhættumiðað eftirlit tryggir að eftirliti sé forgangsraðað þar sem þörf er á því vegna áhættu,“ segir Gissur til frekari útskýringar. „Eðli málsins samkvæmt verða því ekki til skýrslur fyrir aflífun fyrir öll veidd dýr einfaldlega vegna þess að ekki hefur verið eftirlitsmaður um borð í öllum veiddum langreyðum á yfirstandandi veiðitímabili. Því er ekki um „týndar skýrslur“ að ræða.“ Hver einasta langreyður sé skrásett Þótt eftirlitsmaður sé ekki alltaf um borð þegar dýrið er veitt er eftirlitsmaður frá MAST til staðar í hvert skipti sem hræi veidds dýrs er landað. Vísað er á bug að skráningu veiddra hvala sé áfátt. „Haft er eftirlit við löndun allra veiddra dýra í verkunarstöð,“ segir Gissur. Eftirlitið sé í höndum dýralækna MAST en snúi fyrst og fremst að matvælaöryggi og hollustuháttum. Þannig sé „rekjanleiki allra veiddra hvala að fullu tryggður með skráningum á raðnúmerum veiddra langreyða.“ MAST geti ekki krafist upplýsinga um kálffullar kvígur Hvalavinir settu fram gagnrýni á að ekki færi fram sérstök skráning á því hvort að kvenlangreyðar væru kálffullar. Gissur bendir á að MAST geti ekki farið fram á það við veiðileyfishafa að slíkt sé skráð; slík krafa þyrfti að eiga sér stoð í reglugerð um veiðar á langreyðum (895/2023). Þess sé hins vegar krafist af veiðileyfishafa í reglugerð um hvalveiðar (163/1973) – en þar sé MAST ekki eftirlitsaðili og því sé ekki hægt að setja sökina á stofnunina. „… eftirlit með þeirri reglugerð er ekki í höndum Matvælastofnunar. Stofnunin hefur því hvorki hlutverk né getur gert kröfur um söfnun þessara upplýsinga samkvæmt gildandi reglum.“
Hvalveiðar Matvælastofnun Hvalir Dýr Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira