„Nýtt verkefni og nýr leikur“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. júlí 2026 12:31 Sölvi Geir Ottesen er þjálfari Víkings. Vísir/Pawel Sölvi Geir Ottesen segir lið Víkings vera búið að leggja fyrsta tap sumarsins um síðustu helgi til hliðar og á von á hörkuleik gegn sterku liði Keflavíkur í kvöld. „
Þetta er bara nýtt verkefni og nýr leikur. Okkur hlakkar til að mæta Keflvíkingum. Þeir hafa verið flottir í sumar og komið mörgum á óvart, miðað við hvar þeim var spáð fyrir mót. Við spiluðum á móti þeim í Keflavík og það var mikið jafnræði með liðunum. Þetta er hörkulið sem við þurfum að vera klárir í að mæta,“ sagði Sölvi í samtali við Vísi. Víkingur stefnir aftur á sigurbraut í kvöld, eftir að hafa tapað í fyrsta sinn í sumar gegn Þór Akureyri um síðustu helgi. Á milli deildarleikja vann Víkingur sterkan sigur gegn Hapoel Be‘er Sheeva í undankeppni Meistaradeildarinnar. Sölvi segir mikinn mun vera á því að spila tvo heimaleiki í þessari viku, í samanburði við útileiki í Ungverjalandi og á Akureyri í síðustu viku. „Það hjálpar helling til með endurheimt, að þurfa ekki að ferðast jafn mikið og þá getur maður nýtt tímann betur. Það hjálpar sannarlega til en að sama skapi erum við í þéttu prógrammi og það er alltaf þannig að sumir eru svolítið lemstraðir. Við erum tilbúnir að nýta hópinn vel.“ Á dögunum var Davíð Helgi Aronsson kallaður til baka úr láni í Keflavík til Víkings og þaðan seldur til Lyngby. Voru það klókindi hjá Kára Árnasyni, yfirmanni knattspyrnumála, að selja frænda sinn áður en liðin mættust? „Nei nei, hann hefði hvort sem er ekki spilað á móti okkur,“ sagði Sölvi léttur. Víkingar hafa líka verið sagðir í leit að framherja, eftir meiðsli Elías Más Ómarssonar. Viktor Jónsson, leikmaður ÍA, hefur verið orðaður við félagið en Sölvi segir ekkert í spilunum eins og er. „Í raun og veru ekki. Við erum mjög sáttir með hópinn eins og hann er núna. Við vorum með tvo framherja á láni og kölluðum Svein [Margeir Hauksson] til baka. Hann kemur í staðinn fyrir Elías. Svo erum við að fá tvo meidda leikmenn til baka, Stígur [Diljan Þórðarson] og Daði [Berg Jónsson] eru báðir að koma til baka eftir löng og erfið meiðsli. Þannig að við erum mjög ánægðir með hópinn eins og hann er núna. Treystum honum til að klára þau markmið sem við settum okkur fyrir sumarið.“
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Keflavík ÍF Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira