72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Freyja Þórisdóttir skrifar 8. ágúst 2026 11:30 „Fróðir menn“ áætluðu árið 1954 að næsti almyrkvi sæist ekki hérlendis í nærri tvö hundruð ár eða ekki næst fyrr en árið 2151. Sú áætlun stenst ekki, að öllum líkindum, en einnig var talað um að sumum „hafi þótt minna til koma en þeir höfðu vænst eftir“. Skjáskot/Tímarit.is Þann 29. október árið 878 sást fyrsti almyrkvi sem samtímaheimildir eru um hérlendis en hann gekk yfir Bjargtanga, ytri hluta Snæfellsness og Reykjanesskaga um kl. 12:55. Síðan þá hafa ellefu almyrkvar sést frá Íslandi en þann 12. ágúst næstkomandi mun sá tólfti ganga yfir. Þá tekur við löng bið fram að þeim næsta.
Þessi er fjórði í röð fróðleiksmola á Vísi sem munu birtast reglulega næstu vikuna þangað til að almyrkvi fer yfir sólu á sjötta tímanum síðdegis tólfta ágúst næstkomandi. Almyrkvi frá sólu hefur ekki sést á Íslandi í 72 ár en föstudaginn 20. mars 2015 varð deildarmyrkvi hérlendis. Sá eini á okkar ævi Sólmyrkvar á Íslandi-yfirlit um ritaðar samtímaheimildir sem Þórður Arason tók saman fyrir Veðurstofu Íslands er gagnlegt fyrir þá sem vilja kynna sér betur sögu sólmyrkva hérlendis. Þar er til dæmis hægt að lesa um að í Resensannál árið 880 hafi verið ritað: Varð sól sua myrk um nónskæid at sia matte stiornur a himni. Árið 1954 varð uppi fótur og fit víða þegar almyrkvi gekk yfir Ísland en fólk á Indlandi varð vart við sama myrkva ef marka má þessa blaðaúrklippu.Skjáskot/Tímarit.is „Að verða vitni að almyrkva við góðar aðstæður er mögnuð upplifun og það má mæla með því að leggja á sig ferðalag til að njóta almyrkva á sólu, a.m.k. einu sinni á ævinni,“ segir þar. Nema tækni fari ótrúlega mikið fram á næstu áratugum munum við sem erum nú á lífi líklega ekki upplifa annan almyrkva á Íslandi en að sjónarspilinu loknu kvöldið 12. ágúst tekur við 170 ára bið en næsti almyrkvi mun sjást á Íslandi það herrans ár 2196. Það sást síðast til almyrkva á Íslandi þann 30. júní árið 1954 en hann sást mjög vel syðst á Suðurlandi og einna best nærri Dyrhólaey. Í Reykjavík var hins vegar svokallaður deildarmyrkvi sem er eins og sá sem varð árið 2015. Styst níu ár á milli almyrkva Í ár eru því liðin um 72 ár síðan almyrkvi sást hérlendis en næsti almyrkvi tunglsins sem mun sjást frá Íslandi verður svo árið 2196 eða eftir 170 ár. Á sólmyrkvavefnum eru teknar saman ýmisskonar upplýsingar um almyrkva á Íslandi. Þar segir meðal annars að stysti tími milli almyrkva á Íslandi sé níu ár, milli 26. júní 1424 og 17. júní 1433. Lengsta bil milli almyrkva er 264 ár, milli 9. júlí 1469 og 13. maí 1733. Rétt eins og í aðdraganda almyrkvans árið 1954 hafa vísindamenn sett sig í stellingar og verða meðal annars nokkrir frá NASA í Mosfellsdal á miðvikudaginn.Skjáskot/Tímarit.is Almyrkvar verða einhvers staðar á jörðinni á um það bil átján mánaða fresti en á Íslandi virðast þeir hafa dreifst ansi illa í gegnum tíðina. Sum svæði á Íslandi hafa aldrei lent í sólmyrkva frá landnámi og munu ekki gera það fyrir árið 3000, á meðan önnur svæði hafa orðið fyrir honum nokkrum sinnum. Við höfum þegar snert á því hvers vegna venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst, hverju fólk má búast við ef það rætist úr veðurspá og það verður skýjað þegar almyrkvinn verður og hvernig myrkvinn þann 12. ágúst næstkomandi sé ólíkur þeim sem var árið 2015.
Geimurinn Tunglið Sólin Almyrkvi 12. ágúst 2026 Tengdar fréttir NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Bandaríska geimferðastofnunin NASA mun standa í stórræðum hér á landi í ágúst þegar sólmyrkvinn stendur sem hæst. Flugvélar og loftbelgir koma við sögu. 10. júní 2026 21:20 Mest lesið Eldur í bíl í Heiðmörk Innlent Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Erlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Erlent Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Innlent Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Innlent Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Innlent Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Erlent Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Innlent Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Innlent Fleiri fréttir Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Sjá meira
NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Bandaríska geimferðastofnunin NASA mun standa í stórræðum hér á landi í ágúst þegar sólmyrkvinn stendur sem hæst. Flugvélar og loftbelgir koma við sögu. 10. júní 2026 21:20