Innlent

Í gæslu­varðhaldi en segist einungis hafa verið bíl­stjóri

Bjarki Sigurðsson skrifar
Elísabet Inga Sigurðardóttir flytur áhorfendum fréttir kvöldsins.
Elísabet Inga Sigurðardóttir flytur áhorfendum fréttir kvöldsins. vísir

Sakborningur sem grunaður er um aðkomu að mannsláti á Kársnesi í gær hyggst áfrýja gæsluvarðhaldsúrskurði. Verjandi hans segir hann aðeins hafa ekið hinum sakborningnum á vettvang.

Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Sýnar á slaginu 18:30.

Formaður Sjálfstæðisflokksins sakar forsætisráðherra um að vera ósamkvæm sjálfri sér í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Segir hún fyrirhugaða hlustunarfundi forsætisráðherrans um landið ekkert annað en kosningaherferð.

Klippa: Kvöldfréttir 10. ágúst 2026

Hinsegin dagar náðu hámarki um helgina þegar Gleðigangan var gengin um götur miðbæjar Reykjavíkur. Fjöldi fólks lagði leið sína niður í bæ til að fagna fjölbreytileikanum. Við ræðum við formann hátíðarinnar í beinni. 

Mikið hefur verið rætt og ritað um almyrkvann sem gengur fyrir sólu á miðvikudaginn, þar af sumt sem sé einfaldlega ekki satt að mati stjörnufræðings. Við ræðum við Stjörnu-Sævar um algengar mýtur í tengslum við þennan stóratburð. 

Hreiðar Hermannsson, eigandi Stracta-hótela, kemst hvorki lönd né strönd með áform sín um tíu milljarða króna hótelbyggingu í landi Orustustaða austan Kirkjubæjarklausturs þar sem Vegagerðin neitar að leggja veg til hans vegna andstöðu eigenda nágrannajarðar.

Knattspyrnumaðurinn Hrannar Snær Magnússon stoppaði stutt við í Noregi en Víkingar festu kaup á honum í síðustu viku.

Í Ísland í dag er rætt við hjónin Írisi Öldu Ísleifsdóttur og Ævar Ólafsson sem eiga þrjú börn en yngri sonur þeirra greindist með eitilfrumukrabbamein í september á síðasta ári. Eldri sonurinn er með ADHD og nýlega greindur með einhverfurófsröskun. Hjónunum finnst erfitt að geta ekki tekið sársauka barna sinna í burtu en segja samfélagið ótrúlega hjálplegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×