Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. ágúst 2026 10:34 Einbýlishúsið við Tunguás 1 er einkar skemmtilega útlítandi og með sérstæðustu húsum Garðabæjar. Hjónin Helena Björk Magnúsdóttir og Jason Kristinn Ólafsson fasteignasali hafa sett 250 fermetra einbýlishús sitt að Tunguási 1 í Garðabænum á sölu. Ásett verð er 235 milljónir króna.
Um er að ræða stórglæsilegt og sérstætt einbýlishús teiknað af Orra Árnasyni arkitekt og byggt árið 2000 í Ásahverfinu í Garðabæ. Húsið er staðsett á hornlóð með glæsilegt útsýni í átt að Bessastöðum og Snæfellsjökli og fallega hannaðan garð með lýsingu, timburverönd og heitum potti. Eignin er með fjögur svefnherbergi, þrjú baðherbergi, plássmikið eldhús, stóra stofu með miklu útsýni og gasarin, þvottahús og bílskúr sem er 38,7 fermetrar að stærð auk tíu fermetra geymsluskúrs á lóðinni. Þá eru gólfhiti og ofnar í húsinu. Frábært útsýni. Eldhúsið er hannað af Thelmu Friðriksdóttur innanhússarkitekt og vel útbúið af tækjum. Í eldhúsinu er löng eldhúseyja með vaski, eldhúsinnrétting með gott skápapláss og ljósan stein á borðum, gashelluborð með fallegum háfi, nýlegur Miele-of og innfelld uppþvottavél. Gólfið er flísalagt með sömu flísum og í anddyri og á gestasnyrtingu. Garðurinn er gróðursæll með fallegri lýsingu og afgirtri timburverönd með heitum potti á neðri palli. Þá er rúmgóður tíu fermetra geymsluskúr með rafmagni í garðinum. Nánar má lesa um eignina á fasteignavef Vísis og svo eru myndir af henni hér að neðan: Fyrir framan húsið er upphitað bílaplan, smá grasflöt og skjólveggur úr zinki. Gengið er inn í flísalagt anddyri og þaðan inn í borðstofu og eldhús. Í eldhúsinu er löng eldhúseyja. Ragnar Sigurðssson innanhússhönnuður hannaði baðherbergið. Píanó í stofunni. Stofan er björt og rúmgóð. Frá stofunni er gengið niður á neðri hæðina. Á neðri hæðinni er sjónvarpsherbergi. Á neðri hæðinni er hjónasvíta. Á neðri palli verandarinnar er dýrindis pottur.
Fasteignamarkaður Garðabær Hús og heimili Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Sjá meira