Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Lovísa Arnardóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 12. ágúst 2026 14:49 Elisa og Pruitt tjá sig í gegnum klæðnað sinn. Þau hafa sótt sólmyrkvahátíð í Texas líka. Vísir/Bjarni Gestir á Eclipse tónlistarhátíðinni á Hellissandi eru öllu viðbúin en vongóð um að það sjáist til sólar á meðan sólmyrkva stendur. Þúsundir innlendra og erlendra gesta eru nú samankomnar á Hellissandi á tónlistarhátíðinni Iceland Eclipse. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður og Bjarni Einarsson tökumaður hafa rætt við gesti í dag.
Þau hittu til dæmis Javi frá Guatemala sem er á Íslandi að selja kakó, matcha og kaffi frá Gvatemala. Hann segist hafa komið til Íslands vegna sólmyrkvans og sé glaður að hafa fengið tækifæri bæði til að kynna vörur sem framleiddar eru í hans heimalandi og til að sjá sólmyrkvann. Javi er að selja kaffi og kakó frá Gvatemala á hátíðinni. Vísir/Bjarni Þá hittu þau einnig Elisu, sem býr í Kaliforníu en er frá Flórída, og Pruitt frá San Diego. „Ég fór að sjá Texas-sólmyrkvann og við ákváðum að koma fyrir um ári síðan,“ segir Elisa. Klæðir sig í drag Hún segist alltaf klæða sig upp fyrir tónlistarhátíðir. „Konur mega vera í dragi eins og karlar og þetta er mitt drag. Ég á mér persónu og mitt andadýr er kisa með fjögur eyru. Þú munt sjá mig skarta öllum litum regnbogans,“ segir hún. Elisa í sínu dragi. Vísir/Bjarni Pruitt segist vilja nota tækifærið á svona hátíð til að klæðast litum. Elisa er vongóð um að það birti til meðan á sólmyrkvanum stendur. Það hafi gerst í Texas og hún voni að það gerist aftur. „Það var verra, það voru fleiri ský og allir biðu og svo opnaðist lítið gat og maður gat séð sólina fullkomlega, maður gat séð sólmyrkvann fullkomlega, og svo um leið og þetta var búið lokaðist það aftur,“ segir hún og að það hafi byrjað að hellidemba um leið. Elisa og Pruitt eru verulega ánægð með Íslandsferðina og hafa heimsótt alla helstu ferðamannastaðina. Þá finnst þeim ánægjulegt hversu vinalegir allir hafa verið. Keypti hús í rólegu hverfi Karólína er búsett á Hellissandi og hefur búið þar í tvö ár. Hún keypti sér hús á Hellissandi fyrir tveimur árum á mjög rólegum stað og segir breytinguna síðustu vikur á bænum gífurlega. „Svo mætti sólmyrkvi og þrjú þúsund manns.“ Karólína keypti sér hús á Hellisandi fyrir tveimur árum. Vísir/Bjarni Hún segist í fyrstu ekki hafa ætlað að vera heima en vinkona hennar hafi svo sannfært hana um að þær yrðu að vera heima hjá henni, fyrst þetta væri beint fyrir ofan heimili hennar. „Breytingin er söguleg. Það er gaman að taka þátt í þessu,“ segir hún og bætir við að skipuleggjendur hafi gefið öllum íbúum armband. Ákallar vætti og álfa Ástrós Erla Benediktsdóttir listamaður hefur séð um ýmsar athafnir á hátíðinni. „Ég kom inn sem dansari og sé um ritualin fyrir sólmyrkvann og þetta fallega móment. Svo var ég líka á opnunarhátíðinni að ákalla náttúruvættina.“ Ástrós segir athafnirnar tengja við náttúruna, himnana, andana og vættirnar á landinu, álfana og dvergana og fá alla saman til að vinna saman. Ástrós Erla hefur stýrt ýmsum athöfnum á hátíðinni. Vísir/Bjarni Ástrós segir opnunarhátíðina hafa verið vel sótta og hún búist við því að í kvöld á athöfninni verði flestir hátíðargestir. „Það er aðalathöfnin og öllum er boðið að vera með í ákveðnum hlutum athafnarinnar, en á sólmyrkvanum sjálfum erum við að taka inn og leyfa okkur að hlusta á okkur sjálf.“ Spurð hvort fólk skynji meira á Hellissandi en augun nema segist Ástrós skynja hvar sem er en það sé stórt móment þegar mikið af fólki kemur saman. Í sameiningu búi þau til ásetning og í sólmyrkvanum fái þau tækifæri til að stíga inn í sig sjálf. Það þurfi ekki efni til að gera þetta, heldur sé hægt að gera þetta sjálf á hverjum degi. Hún segist ætla að bjóða fólki að finna þetta á hátíðinni. Föðurfjölskyldan frá Íslandi Freyja og Isabel eru frá Los Angeles en faðir þeirra er frá Íslandi. Freyja segir þær hafa verið hér um jólin og þá hafi þær byrjað að hugsa um að koma en svo ákveðið sig fyrir tveimur mánuðum. Fjölskyldan hafi verið saman hér um jólin en þær tvær núna. „Við erum að vona að það létti til og höfum sterka tilfinningu fyrir því að það gerist,“ segir Isabel og að það hafi létt til í kringum fimm í gær. Freyja og Isabel eiga fjölskyldu á Íslandi en komu einar á hátíðina. Vísir/Bjarni Þær segjast ekki endilega verða fyrir vonbrigðum sjái þær ekki til sólmyrkvans því landslagið sé svo fallegt. Þær segja að upplifunin verði alltaf mögnuð því það verði myrkur. Börnin fá sína skemmtun líka Jóna Elísabet Ottesen, skipuleggjandi barnahátíðarinnar Kátt, skipuleggur barnasvæðið fyrir gesti hátíðarinnar. Svæðið er afmarkað og þau geta farið í smiðjur, tónheilun, fengið barnanudd og sögustund. Börnin hafi fengið fræðslu frá starfsfólki NASA um stjörnurnar og alheiminn og svo getað fengið andlitsmálningu. „Þetta er bæði fræðandi og skemmtilegt og afslappandi,“ segir Jóna Elísabet. Jóna Elísabet Ottesen setti saman barnasvæði á hátíðinni. Jóna hefur um arabil skipulagt barnahátíðina Kátt. Vísir/Bjarni Hún segir þetta ástríðu sína og það hafi verið gaman að skipuleggja svæðið í samstarfi við skipuleggjendur hátíðarinnar og það sé önnur áhersla en á Kátt, meiri áhersla sé á náttúru- og stjörnufræðslu. Hún segir skýin koma og fara en hún ætli að hlusta á það sem Stjörnu-Sævar segir að sama hvað gerðist verði þetta mögnuð upplifun.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Snæfellsbær Börn og uppeldi Geimurinn Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Sjá meira