Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Eiður Þór Árnason skrifar 17. ágúst 2026 06:48 Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í vatnalíffræði, segir margt enn óvitað um lúsmýið. Vísir/Sigurjón Líffræðingur segir minna um lúsmý en áður á þeim stöðum sem það fannst fyrst. Áfram sé fylgst náið með moskítóflugum sem fundust hér á landi í fyrra. „
Þeir hafa hreinlega minnkað,“ segir Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í vatnalíffræði, um lúsmýsstofnana á vestanverðu landinu. „Það gerist oft þegar nýir stofnar koma inn á nýtt svæði, þá er nóg af fæðu og auðlindum og svo ganga þær á þetta og um leið koma líka rándýr og annað inn á. Þannig að þetta er orðið miklu þolanlegra svona vestast á landinu en það var áður.“ Nóg til í öðrum landshlutum Tíu ár eru liðin frá því að lúsmý fannst fyrst hér á landi og uxu stofnarnir hratt. „En svo fóru þeir að falla í Kjósinni fyrir tveimur árum og nú hef ég heyrt að þeir séu að fara að falla í Árnessýslu og þar,“ bætir Gísli við. Á sama tíma sé áfram nóg af lúsmýi á Austfjörðum og öðrum svæðum þar sem það birtist síðar. Það kæmi ekki á óvart ef svipaður samdráttur ætti síðar eftir að sjást þar, að sögn Gísla. Áfram fylgst með moskítóflugunum Tvær tegundir moskítóflugna hafa fundist á Íslandi: Culiseta annulata og Culex pipiens. Sú fyrri fannst í Kjósinni og við Mógilsá á síðasta ári og hefur ekki enn gert vart við sig í ár, að sögn Gísla. Karl- og kvenflugur fundust í fyrra og er náið fylgst með því hvort tegundin hafi lifað af íslenska veturinn. „Það er nú ekki útilokað að hún komi núna seinna á sumrinu.“ Hin tegundin, Culex pipiens, hefur fundist í einu hesthúsi á Suðurlandi og er áfram unnið að útrýmingu hennar. „Lirfurnar eru allar í haughúsinu undir og lifa þar. Það er verið að vinna að því og þeim hefur fækkað verulega í húsinu. Af því að þetta er svo staðbundið þá ætti að vera hægt að útrýma henni,“ segir Gísli. Enn sé ekki hægt að útiloka að hin moskítótegundin sem fannst í Kjósinni nái að ljúka lífsferli sínu í sumar. „Ég veit ekki hvað hann er langur á svona köldum svæðum eins og Íslandi. Hún nær alveg í Norður-Noreg en ég finn engar rannsóknir á lífsferlinum þar. Fullorðin fluga lifir alveg innandyra yfir veturinn og fer inn í útihús og annars staðar þar sem er ekki einu sinni frost. Þannig hún á enn þá möguleika á að komast upp.“ Verði aldrei jafn slæmt og lúsmýið Ef moskítóflugan nær fótfestu á Íslandi telur Gísli samt sem áður að fólk muni alltaf finna meira fyrir lúsmýinu sem sé „svo miklu lúmskara.“ Líklegra sé að ein eða nokkrar moskítóflugur komist inn í hús, sveimi í kringum fólk og stingi það svo. „Ef hún nær hér fótfestu þá verður hún aldrei til mikilla leiðinda. Hún verður bara eins og við þekkjum þetta í Skandinavíu. Þú ert kannski bitinn nokkrum sinnum á viku ferðalagi um Danmörku.“ Ekki fundið lirfurnar Gísli bendir á að lítið sé til um rannsóknir á lúsmýsstofnum en áréttar að miklar sveiflur hafi almennt sést í mýsstofnum, til að mynda á Mývatni. „Ef það eru sveiflur í fæðutegundum sem eru einhverjir þörungar, þá eru sveiflur í fullorðnu flugunum.“ Því sé ekki heldur útilokað að lúsmýi komi aftur til með að fjölga á vestanverðu landinu. Sjö tegundir af lúsmýi hafi fundist á Íslandi og einungis ein bíti spendýr á borð við menn. Hinar sæki í mýflugur. „Við höfum ekki einu sinni fundið lirfurnar enn þá af þessu lúsmýi sem er að bíta okkur. Við erum búin að leita og leita og leita.“
Lúsmý Moskítóflugur Skordýr Tengdar fréttir „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Líffræðingur segir Ísland enn frekar fátækt af stunguskordýrum þó nýjar tegundir skordýra séu stöðugt að nema hér land. Unnið er að því að útýma annarri tveggja tegunda moskítóflugu sem fannst hér á landi í fyrra en enn er óljóst hvort það muni ganga upp enda sé lítið vitað um lífsferil flugunnar hér á landi. 21. júlí 2026 00:22 Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Vel gengur að útrýma annarri af tveimur tegundum móskítóflugunnar sem fundust hér á landi síðasta sumar. Þrátt fyrir að hin tegundin hafi enn ekki sést er líffræðingur ekki tilbúinn að afskrifa fluguna. 18. júlí 2026 13:02 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Sjá meira
„Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Líffræðingur segir Ísland enn frekar fátækt af stunguskordýrum þó nýjar tegundir skordýra séu stöðugt að nema hér land. Unnið er að því að útýma annarri tveggja tegunda moskítóflugu sem fannst hér á landi í fyrra en enn er óljóst hvort það muni ganga upp enda sé lítið vitað um lífsferil flugunnar hér á landi. 21. júlí 2026 00:22
Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Vel gengur að útrýma annarri af tveimur tegundum móskítóflugunnar sem fundust hér á landi síðasta sumar. Þrátt fyrir að hin tegundin hafi enn ekki sést er líffræðingur ekki tilbúinn að afskrifa fluguna. 18. júlí 2026 13:02