Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Áróra L Davíðsdóttir skrifar 17. ágúst 2026 10:12 Paolo Brian Guingon og Bjarni Gunnar Kristinsson ganga til liðs við Matarstund. Matarstund Bjarni Gunnar Kristinsson, fyrrverandi yfirmatreiðslumaður á Hilton Nordica, og Paolo Brian Guingon, yfirkokkur á VOX og í veisluþjónustu Hilton Nordica hafa gengið til liðs við Matarstund, en fyrirtækið annast matarþjónustu fyrir leik- og grunnskóla í Hafnarfirði.
Þetta kemur fram í tilkynningu þess efnis en þar segir að þeir muni gegna lykilhlutverki í áframhaldandi þróun matseðla og gæðamála hjá Matarstund. Bjarni Gunnar sé einn reynslumesti matreiðslumaður landsins og hafi meira en tveggja áratuga reynslu í matargerð, rekstri og stjórnun eldhúsa. Áður en hann tók við starfi sínu á Hilton Nordica hafi hann meðal annars komið að opnun og uppbyggingu Reykjavik Edition-hótelsins og stýrði einnig eldhúsinu þar. Einnig hafi hann verið lykilmaður í íslenska kokkalandsliðinu á árunum 2000 til 2014 og var fyrirliði þess þegar það vann til gull- og silfurverðlauna á Ólympíuleikum matreiðslumeistara í Þýskalandi árið 2009. „Að sjá um mat fyrir börn og starfsfólk í leik- og grunnskólum er verkefni sem höfðar sterkt til mín. Það skiptir miklu máli hvað við gefum börnunum okkar að borða og því fylgir mikil ábyrgð. Ég tel að reynsla mín og kunnátta nýtist vel til að veita börnum í Hafnarfirði fjölbreyttan, bragðgóðan og næringarríkan mat,“ er haft eftir Bjarna Gunnari í tilkynningunni. Paolo Brian Guingon hafi yfir 15 ára reynslu úr alþjóðlegum hótel- og veitingarekstri í Filippseyjum, Ástralíu, Kína og á Íslandi. Hann og Bjarni Gunnar, ásamt öðrum matreiðslusérfræðingum Matarstundar, muni vinna að þróun matseðla og gæðamála, með áherslu á bragð, framsetningu og matarupplifun. „Það segir mikið um vegferð Matarstundar að fá tvo jafn reynslumikla matreiðslumenn til liðs við okkur. Bjarni kemur með mikla reynslu, sterka leiðtogahæfileika og djúpan skilning á því hvernig sameina má gæði, næringu og gott bragð. Brian bætir við umfangsmikilli alþjóðlegri reynslu og þekkingu á rekstri stórra eldhúsa. Þeir styrkja þann öfluga hóp matreiðslufólks sem fyrir er hjá Matarstund,“ er haft eftir Pétri Viðarssyni, framkvæmdastjóra Matarstundar. Matarstund annist daglega matarþjónustu fyrir leik- og grunnskóla Hafnarfjarðar og þjónusti daglega þúsundir barna og starfsfólks í bænum.
Grunnskólar Hafnarfjörður Matur Hótel á Íslandi Mest lesið Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Sjá meira