Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Bjarki Sigurðsson skrifar 17. ágúst 2026 23:21 Feðgarnir Ragnar Sverrisson og Jón Ragnarsson taka ávallt á móti viðskiptavinum JMJ með bros á vör. Vísir/Bjarki Skiptar skoðanir eru á tilfærslu Vínbúðarinnar á Akureyri, ári eftir að hún var gerð. Kaupmenn segja miðbæinn enn lifandi en afhendingarstaður netverslunar með áfengi var opnaður í húsnæðinu þar sem vínbúðin var áður.
Um árabil rak ÁTVR verslun við Hólabraut á Akureyri. Í mars 2025 var henni lokað og hún færð á Norðurtorg, nyrst í bænum. Því er ÁTVR ekki lengur með neitt útibú í miðbæ Akureyrar. Galin framkvæmd Kaupmennirnir í JMJ, sem er örfáum metrum frá gamla húsnæði Vínbúðarinnar, óttuðust að við breytinguna myndi staða miðbæjarins veikjast. Þeir segja það þó ekki hafa raungerst. „Maður trúði því ekki að þetta væri að gerast. Að ríkið á Akureyri væri að flytja í nyrsta enda bæjarins. Okkur fannst þetta svo galin þjónusta við bæjarbúa. Sérstaklega í fyrrasumar urðum við varir við að fólk kom inn til okkar og spurði hvar það væri áfengisverslun. Við bentum í norður og spurðum hvort fólk vissi hvar Dalvík væri. Já var þá sagt. Við sögðum því að það þyrfti að fara langleiðina þangað til að fara í ríkið. Þetta var í sjálfu sér galin framkvæmd,“ segir Ragnar Sverrisson kaupmaður. „Eins og gamli maðurinn segir þá er mikið um að vera þótt ríkið hafi farið. Við erum komin með Smáríkið og Dýrabæ,“ segir Jón Ragnarsson kaupmaður. Viðskiptavinirnir kvarta ekki Það kemur nefnilega maður í manns stað, eða vínbúð í vínbúðar stað. En hvað segja viðskiptavinir ÁTVR um breytinguna rúmu ári síðar? „Ég kem nú ekkert oft hingað en þetta er allt í góðu lagi því þetta er við hliðina á Bónus. Þetta er allt í besta standi,“ segir Aðalsteinn. Þetta er ekkert of langt í burtu? „Neineinei, ég er reyndar hinum megin í bænum en það skiptir mig engu máli. Allt í góðu lagi.“ „Þetta er bara snilld. Þú ert með allt hérna, Bónus, Jysk og Vínbúðina. Þú þarft ekkert meira,“ segir Jón Pétur. Býrðu rétt hjá? „Nei, reyndar ekki.“ Þú kippir þér ekkert upp við aksturinn? „Nei, það þýðir ekki neitt.“ „Það er bara geggjað að hún sé loksins komin í 603,“ segir Róbert Alexander. „Þetta var skellur fyrir mig, það er lengra að fara. En maður lætur sig hafa það,“ segir Albert.
Akureyri Áfengi Verslun Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira