Handbolti

Mun Guð­mundur reisa Holland við?

Sindri Sverrisson skrifar
Guðmundur Guðmundsson var síðast þjálfari Fredericia í Danmörku.
Guðmundur Guðmundsson var síðast þjálfari Fredericia í Danmörku. EPA-EFE/Tamas Vasvari

Guðmundur Guðmundsson gæti orðið næsti þjálfari hollenska karlalandsliðsins í handbolta.

Frá þessu er greint á vef Handkastsins í dag þar sem segir að Guðmundur sé í viðræðum við hollenska handknattleikssambandið. Hann hefur ekki svarað fyrirspurn Vísis vegna málsins.

Guðmundur gæti því snúið aftur í landsliðahandboltann eftir að hafa áður stýrt Íslandi, Barein og Danmörku. 

Hann var síðast þjálfari Fredericia í Danmörku en var rekinn þaðan í september í fyrra, þrátt fyrir að undir stjórn Guðmundar hafi liðið unnið verð­laun í fyrsta sinn í 43 ár, farið alla leið í odda­leik í úr­slitum dönsku deildarinnar og spilað í Evrópu­keppni í fyrsta sinn.

Hollendingar eru í leit að landsliðsþjálfara eftir að Svíinn Staffan Olsson hætti í sumar, í kjölfar þess að hafa mistekist að koma liðinu á HM sem fram fer í byrjun næsta árs. Hollendingar töpuðu einvígi við Grikkland, samtals með sjö marka mun, í maí.

Olsson hafði verið þjálfari Hollands í fjögur ár. Undir hans stjórn fór liðið á HM árið 2023 og 2025, eftir að hafa ekki verið með á HM síðan árið 1961. Liðið hefur svo verið með á síðustu fjórum Evrópumótum og komst í milliriðlakeppnina á EM 2022 og 2024.

Olsson, eða Faxi eins og hann var kallaður á Íslandi á sínum tíma, tók við Hollandi af Erlingi Richardssyni sem stýrði liðinu á árunum 2017-2022.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×