Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Árni Sæberg skrifar 20. ágúst 2026 11:44 Höfuðstöðvar Símans í Ármúla. Vísir/Vilhelm Afkoma Símans á öðrum ársfjórðungi var ásættanleg en hefði mátt vera sterkari, að sögn forstjóra. Ekkert nýtt er að frétta af kaupum Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar.
Síminn birti afkomu annars ársfjórðungs eftir lokun markaða í gær. Í tilkynningu er haft eftir Maríu Björk Einarsdóttur forstjóra að tekjur af fjarskiptum hafi hækkað lítillega milli ára, en tekjur af sjónvarpsþjónustu dregist aðeins saman. Kröftugur vöxtur hafi verið í auglýsingamiðlun, en sala í tengslum við sveitarstjórnarkosningar hafi gengið vonum framar, bæði í Sjónvarpi Símans og á umhverfismiðlaneti Billboard. „Eins og hjá öðrum fyrirtækjum og heimilum í landinu hafa viðvarandi verðbólguþrýstingur og kostnaðarhækkanir á breiðum grunni sett mark sitt á afkomuna. Á fjórðungnum var því gripið til markvissra hagræðingaraðgerða í grunnrekstri Símans sem munu byrja að skila sparnaði á síðari árshelmingi og styðja við fjárhagsleg markmið félagsins.“ Helstu niðurstöður úr rekstri Símans á 2F 2026: Tekjur á öðrum ársfjórðungi (2F) 2026 námu 7.356 m.kr. samanborið við 7.196 m.kr. á sama tímabili 2025 og hækkuðu um 2,2%. Tekjur af fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu stóðu í stað á milli ára. Tekjur af auglýsingamiðlun námu 705 m.kr. samanborið við 604 m.kr. á sama tímabili í fyrra og hækkuðu um 16,7%. Vörusala jókst um 20,2% á milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.599 m.kr. á 2F 2026 og lækkaði um 325 m.kr. eða 16,9% frá sama tímabili 2025. EBITDA hlutfallið er 21,7% á 2F 2026 en var 26,7% á sama tímabili 2025. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 620 m.kr. á 2F 2026 samanborið við 931 m.kr. á sama tímabili 2025. Hrein fjármagnsgjöld námu 281 m.kr. á 2F 2026 en námu 257 m.kr. á sama tímabili 2025. Fjármagnsgjöld námu 552 m.kr., fjármunatekjur voru 274 m.kr. og gengistap nam 3 m.kr. Hagnaður á 2F 2026 nam 269 m.kr. samanborið við 537 m.kr. á sama tímabili 2025. Hagnaður á hlut nam 0,12 kr. á fjórðungnum. Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 20,8 ma.kr. í lok 2F 2026, en voru 19,5 ma.kr. í árslok 2025. Handbært fé í lok 2F 2026 nam 2.065 m.kr., en var 980 m.kr. í árslok 2025. Bókfært virði útlánasafns Símans Pay var 4,2 ma.kr. í lok 2F 2026. Hreinar vaxtaberandi skuldir / 12M EBITDA1 í lok 2F 2026 var 2,1x. Eiginfjárhlutfall Símans var 37,2% í lok 2F 2026 og eigið fé 16,7 ma.kr. Ekkert nýtt að frétta Í tilkynningunni er haft eftir Maríu Björk að þrátt fyrir að ytri aðstæður séu um margt krefjandi haldi félagið áfram umbreytingu samstæðunnar. Markmiðið sé að innleysa umtalsverð samlegðartækifæri auk þess að treysta grunninn fyrir framtíðarvöxt og enn betri nýtingu innviða. Eignarhaldsfélagið Ásar hafi þannig formlega til starfa 1. júlí og sama dag hafi Greiðslumiðlun Íslands orðið hluti samstæðunnar. Í júlí hafi öll bankalán samstæðunnar verið endurfjármögnuð af Landsbankanum til næstu fimm ára. Um leið hafi félagið tryggt sér aðgang að frekara fjármagni til vaxtar, en heildarfjárhæð fjármögnunarinnar sé 31 milljarður króna. Með endurfjármögnuninni tryggi félagið sér hagstæð kjör og skilmála til viðbótar við aukinn sveigjanleika, sem henti vel í vaxtarfasa næstu ára. „Við hækkum afkomuspá okkar vegna innkomu Greiðslumiðlunar Íslands. Samhliða lækkum við fjárfestingarspá ársins um 200 milljónir, en minni fjárfestingarþörf má meðal annars þakka hagnýtingu gervigreindar sem bætir skilvirkni í hugbúnaðarþróun, auk hagstæðari samninga um kaup á sjónvarpefni. Tækifæri eru til að nýta gervigreind á fleiri sviðum starfseminnar með tilheyrandi rekstrarábata, en það er ein af lykiláherslum félagsins á komandi misserum.“ Athygli vekur að í tilkynningunni er ekki minnst einu orði á fyrirhuguð kaup Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar, sem tilkynnt var um þann 12. mars síðastliðinn. Síminn stóð fyrir fjárfestakynningu í tengslum við afkomutilkynninguna og þar var María Björk spurð að því hvenær mætti búast við því að kaupin rötuðu inn á borð Samkeppniseftirlitsins. „Þið sjáið að við minnumst ekki á það í þessari kynningu og ástæðan er sú að það er ekkert til að reporta. Síðasta tilkynning, hún stendur. Félögin hafa undirritað skilmálaskjal og þetta er allt í hefðbundnu ferli, áreiðanleikakönnun og kaupsamningsviðræðum. En nei, við getum ekki gefið ykkur neina hugmynd um það hvenær því ferli lýkur.“ Vísir er í eigu Sýnar.
Síminn Sýn Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Sjá meira