„Maður var aldrei alveg rólegur“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. ágúst 2026 21:50 Rúnar Kristinsson var sáttur með sigurinn eftir mikið stress á lokamínútum leiksins. Vísir / Hulda Margrét „Það er bara frábært að vinna og ná að halda fengnum hlut, ef svo má segja,“ sagði Rúnar Kristinsson eftir 3-4 sigur Fram gegn Breiðablik á Kópavogsvelli í kvöld. Fram skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik en þurfti að berja Blikana af sér í seinni hálfleik. „
Við gerðum þetta aftur erfitt fyrir okkur, í heimaleiknum á móti Breiðabliki vorum við líka 4-1 yfir [í hálfleik] og aftur núna. Ég reyndi að vera reiður í hálfleik, skamma strákana aðeins til að koma þeim í gírinn fyrir seinni hálfleikinn en við komum samt hálfsofandi út. Svo skora þeir [Blikar] tvö mörk á þriggja mínútna kafla og voru aðeins ólíkir því sem þeir spila venjulega. Það var mikið af löngum boltum og þeir gáfu margar góðar spyrnur inn á teiginn sem við, með okkar stóru menn, áttum í mesta basli með að hreinsa. Það var alltof mikið eftir þegar staðan var 4-3 þannig að maður var aldrei alveg rólegur,“ bætti Rúnar við eftir leik. Mörkin sem Breiðablik skoraði í seinni hálfleik fylgdu svipaðri uppskrift og komu bæði eftir langan bolta inn fyrir vörn Fram frá hægri bakverðinum Óla Val Ómarssyni. „Oftast hef ég verið sáttur við að fá fyrirgjafir úr þessari stöðu, við erum það sterkir á þessu svæði. Ég vil það frekar en að það sé spilað í gegnum okkur. Við höfum náð að eiga við þetta í meira og minna allt sumar en ekki þarna. Ég breytti síðan í 5-4-1 síðustu mínúturnar til að koma betur í veg fyrir þetta og fækka fyrirgjöfunum, en þetta var stress. Smá panikk í restina og gott að sigla þessu í höfn. Það gleður mig því það er ekki auðvelt að vinna hér.“ Fram saknaði Fred Saraiva og Simon Tibbling af miðsvæðinu í kvöld en Rúnar segir stutt í þá. „Ég held að þeir muni báðir reyna að æfa með okkur á morgun og svo aftur á fimmtudaginn, þegar við undirbúum leikinn á móti KA í næstu umferð. Vonandi verða þeir klárir í þann slag en ég veit það ekki enn þá.“
Besta deild karla Breiðablik Fram Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira