Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Sindri Sverrisson skrifar 3. september 2026 20:24 Frederik Simak og Mathias Gidsel reyna að hemja Gísla í leiknum í kvöld. Simak var svo rekinn af velli fyrir ljótt brot á Gísla. Getty/Ronny Hartmann Gísli Þorgeir Kristjánsson var að vanda í aðalhlutverki hjá Magdeburg í kvöld en þó ekki aðeins á jákvæðan hátt, þegar liðið vann Füchse Berlín 36-32 í stórleik í þýsku 1. deildinni í handbolta. Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, var á meðal áhorfenda.
Gísli varð fyrir ljótu broti Þjóðverjans Frederik Simak rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Simak missti Gísla framhjá sér, greip þá utan um hann að aftan og kippti í skothöndina. Dómararnir skoðuðu atvikið vel á skjá og ráku svo Simak af velli en hann fór fyrst til Gísla og bað hann afsökunar. Magdeburg minnkaði svo muninn í eitt mark úr vítakastinu sem dæmt var, 14-13, og þannig var staðan í hálfleik. Alfreð Gíslason var spurður út í rauða spjaldið á Simak, í sjónvarpsútsendingu í hálfleik, og sagðist telja um réttan dóm að ræða. Án Gísla í lokin og án Ómars allan leikinn Gísli var svo búinn að skora fimm mörk og gefa heilar sjö stoðsendingar þegar hann var sjálfur rekinn af velli, tæpum átta mínútum fyrir leikslok, fyrir að fara utan í hornamann Füchse sem var að stökkva inn úr horninu til að skjóta. Aftur skoðuðu dómararnir atvikið vel á skjá áður en þeir lyftu rauða spjaldinu, við litla hrifningu Gísla sem varð að horfa á lok leiksins af áhorfendapöllunum Staðan var orðin 31-26 þegar þarna var komið við sögu og Magdeburg náði að halda forystunni til enda gegn Mathias Gidsel og félögum, og vinna fjögurra marka sigur. Albin Lagergren og Magnus Saugstrup enduðu markahæstir hjá Magdeburg með sjö mörk hvor en Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark. Ómar Ingi Magnússon var ekki með liðinu en hann mun hafa verið veikur heima. Gidsel skoraði sjö mörk og átti átta stoðsendingar fyrir Füchse. Magdeburg hefur nú unnið fyrstu tvo deildarleiki sína á tímabilinu en Füchse unnið einn og tapað einum. Fyrr í kvöld urðu lærisveinar Rúnars Sigtryggssonar í Wetzlar að sætta sig við 31-27 tap gegn Lemgo á útivelli. Í dönsku úrvalsdeildinni gerðu lærisveinar Arnórs Atlasonar, aðstoðarlandsliðsþjálfara, í liði TTH Holstebro 29-29 jafntefli við GOG á útivelli. Jóhannes Berg Andrason skoraði tvö mörk fyrir gestina sem bíða þess enn að geta nýtt krafta Benedikts Gunnars Óskarssonar sem lenti í alvarlegu slysi á golfvelli í sumar.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira