Handbolti

Arnar Freyr og fé­lagar í Flensburg á­fram með fullt hús

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arnar Freyr Arnarsson kom við sögu í þriðja sigrinum í röð. 
Arnar Freyr Arnarsson kom við sögu í þriðja sigrinum í röð.  EPA/JOHAN NILSSON

Flensburg vann nokkuð þægilegan sigur á Erlangen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag en lokatölur voru 38-33 en leikurinn fór fram í Flensburg.

Landsliðsmaðurinn Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt mark og gaf eina stoðsendingu í leiknum. Emil Jakobsen var markahæstur í liðinu með 10 mörk en Simon Pytlick gerði níu.

Flensburg hefur unnið alla þrjá leiki sína á tímabilinu en Erlangen er aðeins með eitt stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×