Handbolti

Skoraði fimm­tán mörk

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var stórkostleg í dag. 
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var stórkostleg í dag.  Haukar

Haukar unnu þægilegan sigur á HK í fyrstu umferð Olís-deildar kvenna í kvöld en leikurinn fór 28-20 og var leikinn í Hafnarfirði.

Staðan í hálfleik var 14-11 fyrir Hauka sem juku við forskot sitt í síðari hálfleiknum.

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var stórkostleg fyrir Hauka en hún gerði fimmtán mörk í leiknum. Sara Sif Helgadóttir varði 16 skot í markinu.

Tímabilið fer því vel af stað hjá Haukum sem er spáð góðu gengi í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×