Handbolti

„Pirraðastur er ég yfir þessum tíu loka­mínútum“

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Aron Pálmarsson var ekki nægilega sáttur og fannst hans menn tapa stigi í kvöld.
Aron Pálmarsson var ekki nægilega sáttur og fannst hans menn tapa stigi í kvöld. Vísir/Anton Brink

FH gerði í kvöld jafntefli gegn Aftureldingu í Myntkaup höllinni að Varmá, 33-33. FH leiddi nánast allan leikinn, en missti frá sér forystuna undir lokin sem Aron Pálmarsson, þjálfari liðsins, pirraði sig á í viðtali eftir leik.

„Síðasta korterið fannst mér við detta svolítið niður varnarlega. Mér fannst við gera þetta ágætlega þ.e.a.s. hvað við ætluðum að gera, allt eins og við lögðum upp með. Síðasta korterið fannst mér við bara soft,“ sagði Aron um leik sinna manna á lokakaflanum.

Aðspurður hvað liðið taki jákvætt út úr þessum leik, þá hafði Aron þetta að segja.

„Sóknarleikurinn, seinni bylgjan var svona stundum stíf á köflum en vorum að hlaupa það samt fínt og mér fannst varnarleikurinn töluvert betri en í síðasta leik. Við vorum þéttari og gerðum það betur. Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum varnarlega, við dettum niður þar og þar af leiðandi dettur markvarslan niður.“

Lítið þið á þetta sem tapað stig?

„Já algjörlega, hundrað prósent. Við komum hérna til þess að vinna og svo hvernig leikurinn spilaðist þá er þetta algjörlega tapað stig.“

FH er spáð góðu gengi á tímabilinu en leikmannahópurinn er töluvert breyttur frá síðustu leiktíð. Hvernig lítur Aron á sitt lið eftir fyrstu tvær umferðirnar í Olís-deildinni.

„Ég er bara nokkuð ánægður með liðið. Hvernig við erum að spila og hvað við erum að gera. Auðvitað erum við með mikið af nýjum leikmönnum og auðvitað nýr þjálfari, þannig að maður þarf stundum að banka í sjálfan sig og minna sig á að þetta er smá þolinmæði. Ég er bara ánægður með startið og mér finnst strákarnir koma vel inn í þessa fyrstu tvo leiki,“ sagði Aron að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×