Innlent

Kourani farinn úr landi

Árni Sæberg skrifar
Mohamad Kourani má ekki koma aftur til Íslands næstu þrjátíu árin.
Mohamad Kourani má ekki koma aftur til Íslands næstu þrjátíu árin. Vísir

Mohamad Th. Jóhannessyni, áður Kourani, hefur verið veitt reynslulausn eftir að hafa afplánað einn þriðja af átta ára fangelsisdómi og honum hefur verið fylgt til Sýrlands.

Kourani var dæmdur í átta ára fangelsi í júlí árið 2024 fyrir tilraun til manndráps í versluninni OK Market í Reykjavík í mars sama ár og fjölmörg önnur brot. Hann hefur nú afplánað einn þriðja refsingar sinnar. Þann 8. september hlaut hann reynslulausn og var í kjölfarið fylgt til heimalands síns Sýrlands. Hann sætir 30 ára endurkomubanni inn á allt Schengen-svæðið.

Veit ekki betur en að heimferðin hafi gengið vel

Þetta staðfestir Böðvar Einarsson, staðgengill forstjóra Fangelsismálastofnunar, í samtali við fréttastofu. Hann segir að brottvísun Kouranis hafi verið á ábyrgð fylgda- og heimferðardeildar Ríkislögreglustjóra en eftir því sem hann komist næst hafi heimferð hans gengið snurðulaust fyrir sig.

Reynslulausn Kouranis og brottvísun byggja á bráðabirgðalögum dómsmálaráðherra, sem heimila reynslulausn að lokinni afplánun eins þriðja refsidóms, að því gefnu að ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun liggi fyrir. 

Á þriðja tug verið sleppt

Að sögn Böðvars hefur á þriðja tug fanga verið veitt reynslulausn á grundvelli laganna frá því að þau voru samþykkt þann 1. júní síðastliðinn. 

Meðal þeirra er Angjelin Sterkaj sem var sleppt úr haldi í ágúst, eftir að hafa afplánað einn þriðja sextán ára dóms fyrir aftöku í Rauðagerði árið 2021.

Brottvísun Sterkaj sætti nokkurri gagnrýni á sínum tíma, meðal annars frá Sigríði Á. Andersen þingmanni, sem sagðist ekki hafa órað fyrir því að bráðabirgðaákvæði dómsmálaráðherra myndi leysa menn úr haldi eftir svo alvarlega glæpi.

Þá sagði Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrverandi vararíkissaksóknari, að með þessu væri verið að senda röng skilaboð til kaldrifjaðra morðingja.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er

Fangelsismálastjóri fagnar lagabreytingu sem heimilar Fangelsismálastofnun að veita föngum reynslulausn þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn ef fyrir liggur ákvörðun um að vísa þeim úr landi. Áhyggjur af afslætti af refsingum séu skiljanlegar en Fangelsismálastofnun telji ástæðu til að nýta heimildina eins og kostur er í það ár sem hún gildir.

Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi

Drögum að frumvarpi um fullnustu refsinga, sem varðar brottvísun og afplánun erlendra fanga hefur verið dreift í samráðsgátt stjórnvalda. Í drögunum er meðal annars gert ráð fyrir tímabundinni heimild til að veita erlendum föngum, sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi að afplánun lokinni, reynslulausn þegar aðeins einn þriðji hluti refsitímans er liðinn. Samkvæmt gildandi lögum þarf helmingi afplánunar að vera lokið til að veita megi reynslulausn, en frumvarpsdrögin gera ráð fyrir að viðkomandi verði vísað úr landi þegar í stað við reynslulausn.

Sýrlendingar samþykkja að taka við Kourani

Yfirvöld í Sýrlandi hafa samþykkt að taka við Mohamad Kourani, sem var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir rúmu ári, verði hann sendur þangað. Nú stendur það aðeins á náðunarnefnd að hann verði fluttur úr landi og settur í endurkomubann í áratugi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×