Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Kristján Már Unnarsson skrifar 13. september 2026 22:54 Airbus A320-þotur Atlantic Airways á flugvellinum í Vogum í Færeyjum. Þær taka 174 farþega. Atlantic Airways Færeyska flugfélagið Atlantic Airways, eða Atlantsflog eins og það heitir á móðurmálinu, hefur ákveðið að fækka flugferðum milli Íslands og Færeyja í vetur, og raunar leggja Íslandsflug alfarið niður yfir háveturinn. Ástæðan er aukin samkeppni frá Icelandair, sem tilkynnti í lok maímánaðar að það hygðist fljúga allt árið til Færeyja. „
Atlantsflog tekur nú afleiðingum samkeppninnar frá Icelandair,“ segir í frétt færeyska miðilsins Portal, sem ræðir við forstjórann Jóhönnu af Bergi, undir fyrirsögninni „Atlantic gearar niður við íslandsflúgvingini í vetur“. Kringvarpið tekur málið svo upp undir fyrirsögninni „Atlantsflog repar seglini á Íslandsleiðini“. „Við erum neydd til að taka tillit til veruleikans eins og hann er. Þegar við vorum ein á markaðnum tókst okkur að fljúga til Íslands yfir veturinn. Með stærri flugvélunum varð þetta aðeins verra, og með þeirri samkeppni sem við höfum fengið frá Icelandair, sem notar minni flugvélar á leiðinni, er ekki mögulegt fyrir okkur að fljúga eins oft á veturna,“ segir Jóhanna á Bergi, forstjóri Atlantsflogs, í samtali við Portal en bætir við að færeyska félagið hafi engar áætlanir um að hætta að fljúga til Íslands. Dash 8 Q400-flugvél Icelandair í flugtaki á Vogaflugvelli þann 1. maí 2024, daginn sem félagið hóf Færeyjaflug á ný eftir tuttugu ára hlé. Þær taka 76 farþega.Egill Aðalsteinsson Atlantic Airways flýgur núna í haust tvisvar í viku milli Færeyja og Íslands, á mánudögum og föstudögum, eftir þrjú flug á viku í sumar. Frá 23. október fækkar ferðunum niður í eina ferð í viku. Frá 14. desember til 19. mars verður ekkert Íslandsflug á vegum færeyska félagsins, þó með þeirri undantekningu að milli 25. janúar og 8. febrúar verða tvær flugferðir fram og til baka í viku, en tengdar viðburðum. Frá 19. mars hyggst Atlantic fljúga tvisvar í viku milli Íslands og Færeyja og síðan þrisvar í viku yfir sumarið, frá 3. maí. Færeyska félagið notar Airbus A320-þotur í Íslandsfluginu en þær taka 174 farþega. Icelandair notar hins vegar 76 sæta Dash 8 Q400-vélar á leiðinni en fræðast má um sögu Færeyjaflugsins og upplifa lendingu í Vogum hér í þessu myndskeiði Flugþjóðarinnar: Icelandair hóf Færeyjaflug að nýju vorið 2024 eftir tuttugu ára hlé, en þó í fyrstu ekki yfir vetrarmánuði. „Færeyjaflugið fór strax vel af stað og frá upphafi var markmiðið að stefna að flugi allt árið. Það er því mjög ánægjulegt að tilkynna um heilsársflug nú aðeins tveimur árum eftir að við byrjuðum að fljúga þangað,“ var haft eftir Tómasi Ingasyni, framkvæmdastjóra tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair, í fréttatilkynningu félagsins þann 28. maí síðastliðinn. Flugvél Icelandair við flugstöðina í Vogum.KMU Fram til 27. september flýgur Icelandair fimm sinnum í viku milli Keflavíkur og Vogaflugvallar. Þá fækkar ferðum Icelandair niður í fjórar ferðir á viku en síðan niður í þrjár ferðir yfir veturinn frá 19. október til 30. apríl. Ferðum Icelandair fjölgar síðan upp í fjórar á viku til 31. maí og upp í sex á viku frá 1. júní og út sumarið, samkvæmt frétt Portal. Daginn sem Icelandair hóf Færeyjaflug að nýju var Stöð 2 í beinni útsendingu frá Þórshöfn, sem sjá má hér:
Flug Færeyjar Icelandair Keflavíkurflugvöllur Flugþjóðin Tengdar fréttir Fljúga til Færeyja árið um kring Icelandair hefur ákveðið að framlengja flug til Færeyja og verða eyjarnar nú heilsársáfangastaður í leiðakerfi félagsins. 28. maí 2026 10:46 Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Færeysk þjóðsaga segir frá tveimur tröllum sem komu frá Íslandi til að reyna að draga Færeyjar til Íslands. En verkið reyndist þeim ofviða og þegar sólin kom upp urðu tröllin að steini og enduðu sem tveir drangar norðan Færeyja. 22. febrúar 2026 07:57 Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Færeyja á ný eftir tuttugu ára hlé. Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja fagna áfanganum sem og flugstjóri fyrstu flugferðarinnar. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku gegnt flugfélaginu Atlantic Airways sem hefur verið að fljúga á milli tvisvar til þrisvar í viku. 1. maí 2024 23:00 Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira
Fljúga til Færeyja árið um kring Icelandair hefur ákveðið að framlengja flug til Færeyja og verða eyjarnar nú heilsársáfangastaður í leiðakerfi félagsins. 28. maí 2026 10:46
Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Færeysk þjóðsaga segir frá tveimur tröllum sem komu frá Íslandi til að reyna að draga Færeyjar til Íslands. En verkið reyndist þeim ofviða og þegar sólin kom upp urðu tröllin að steini og enduðu sem tveir drangar norðan Færeyja. 22. febrúar 2026 07:57
Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Færeyja á ný eftir tuttugu ára hlé. Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja fagna áfanganum sem og flugstjóri fyrstu flugferðarinnar. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku gegnt flugfélaginu Atlantic Airways sem hefur verið að fljúga á milli tvisvar til þrisvar í viku. 1. maí 2024 23:00