„Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 13. september 2026 23:46 Gunnar Heiðar Þorvaldsson var ósáttur með nokkrar ákvarðanir hjá dómaranum í kvöld. Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK, var svekktur en stoltur af sínum mönnum eftir að liðið féll úr leik gegn Fylki í undanúrslitum umspilsins um sæti í Bestu deild karla í kvöld. Gunnar var ánægður með frammistöðu liðsins stóran hluta leiksins en var jafnframt afar ósáttur við nokkur stór dómaramóment sem hann taldi hafa reynst HK dýrkeypt. „
Nú þarf ég að vanda mig,“ sagði Gunnar þegar hann var spurður hvað hefði kostað HK sigurinn. „Diplómatíska svarið væri að segja að þetta hafi verið tvö góð lið að mætast og það var þannig á mörgum stundum. En persónulega fannst mér við vera með frábær tök á þessum leik.“ „Við komum út í seinni hálfleik og vorum virkilega, virkilega góðir. Við vorum með öll tök á leiknum, þeir skapa sér ekki neitt og við pressum á þá og skorum tvö mörk.“ Gunnar taldi tvenn dómaraskipti með tilheyrandi töf með skömmu millibili hafi tekið vindinn úr seglum HK á þeim tímapunkti er liðið hafði náð yfirhöndinni „Þegar við erum komnir með mómentið með okkur kemur allt í einu einhver seinni skipting á aðstoðardómara eða eitthvað slíkt. Það tekur svolítið mómentið frá okkur til að halda áfram að pressa á þá og ná þriðja eða jafnvel fjórða markinu.“ Leikurinn fór að lokum í framlengingu þar sem Fylkir skoraði jöfnunarmarkið sem reyndist um leið sigurmark einvígisins. Gunnar var mjög ósáttur við aðdraganda marksins og það sem gerðist í kjölfarið. „Ég ætla ekki að kenna einum eða neinum um en menn þurfa bara að vera stærri en mómentið. Það er bara þannig. Dominik Radic er bara rifinn niður. Það er ekki dæmt og svo kemur einhver rót á þetta, þeir ná bolta bak við okkur og skora. Svo fær hann rautt spjald í kjölfarið. Mér var sagt að hann hefði sparkað á eftir einhverjum manni en ég sá ekkert slíkt.“ Gunnar taldi HK síðan hafa átt að fá vítaspyrnu undir lok framlengingarinnar þegar Jóhann komst inn fyrir vörn Fylkis. „Hann tekur snertingu með sér inn fyrir varnarmanninn sem stígur fyrir hann og tekur hann niður. Ertu nægilega stór til að þora að dæma þetta víti eða ekki? Frá minni hlið séð var þetta víti.“ Gunnar sagðist alla jafna ekki vilja kenna dómgæslunni um úrslit leikja en fannst atvikin í Árbænum hafa vegið þungt. „Ég hef aldrei verið þannig, hvorki sem leikmaður né þjálfari, að kenna dómurum um. En þetta er bara svo ógeðslega dýrt að það hálfa væri nóg. Auðvitað er maður svekktur.“ Hljómar eins og afsökun Tímabilinu er lokið hjá HK. Gunnar Heiðar gaf ekkert annað til kynna en að hann myndi halda áfram þeirri vegferð sem hófst hjá liðinu í sumar. „Ég er allavega með samning við HK. Þegar við fórum af stað í þessa vegferð vissum við að þetta tæki tíma. Það má eiginlega ekki segja það í fótbolta í dag því þá hljómar það eins og afsökun.“ „Þessi leikur skilgreinir ekki tímabilið okkar. Þetta er bara eitt af skrefunum í átt að því sem við viljum verða, sem er að vera eitt af tíu bestu liðum landsins,“ sagði Gunnar að lokum.
HK Lengjudeild karla Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti Dagskráin í dag: Haaland í Portúgal, Formúla 1 og kapphlaup Blika og FH-inga Sport Fleiri fréttir Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Sjá meira