„Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 24. september 2026 21:42 Grétar Ari Guðjónsson gat leyft sér að fagna vel og innilega í leikslok. Vísir/Diego Grétar Ari Guðjónsson, markvörður Hauka, reyndist hetja liðsins er Haukar unnu dramatískan eins marks sigur í Hafnarfjarðarslagnum gegn FH í Olís-deild karla í kvöld, 34-35.
Haukar voru með yfirhöndina nánast allan leikinn og leiddu með fimm mörkum þegar um fjórar mínútur voru eftir. FH-ingar náðu þó að minnka muninn niður í eitt mark og fengu tækifæri til að jafna metin á lokasekúndunum, en Grétar Ari rauk út af marklínunni og slökkti í vonum FH-inga. „Þetta var óþarflega tæpt, en mér finnst þessir Hafnarfjarðarslagir alltaf enda í einhverri svona vitleysu. En mér finnst þetta líka bara eðlilegt að þetta endi í svona. Á meðan við sigrum er mér svo sem alveg sama hvernig það gerist,“ sagði Grétar Ari í leikslok. Grétar Ari hefur oft sýnt betri frammistöðu en hann sýndi í fyrri hálfleik í kvöld, en hann kom sterkur inn í seinni hálfleikinn og varð að lokum hetja Hauka. „Markvarslan var ekki frábær í fyrri hálfleik. Hún var bara mjög léleg. En þetta er bara hlutfall líka. Ef þú kastar peningi upp í loftið þá eru helmingslíkur en þú getur samt fengið hann fimm sinnum í röð á sömu hliðina. Mér fannst Jón Þórarinn (markvörður FH) alveg vera að gera vel og mér fannst ég alveg vera að gera vel. Þetta var bara einhvernveginn að leka í gegnum okkur. Það voru fullt af boltum sem við vorum að snerta, en svona er bara lífið í markinu,“ sagði Grétar. „Þarna í lokin. Þetta var náttúrulega bara úrslitaskot og mér fannst hann hoppa svolítið nálægt markinu þannig ég ákvað að hoppa bara út á móti og vonast til að pressan væri það mikil að hann myndi ekki ná að sjá markið og ekki sjá hvað ég væri í raun kominn nálægt honum. Það virkaði í þetta skiptið. En það hefur líka klikkað hundrað sinnum.“ Eftir sigurinn eru Haukar með fullt hús stiga á toppi deildarinnar eftir fjórar umferðir. En hvert er liðið að stefna á tímabilinu? „Það er náttúrulega mjög stutt búið af mótinu. En við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn. Það er krafa um það. Hvort það takist eða ekki er svo bara annað mál,“ sagði Grétar. „Við vitum alveg að það er stutt á milli í þessu. Við áttum til dæmis leiki í fyrra þar sem við unnum Val með 11 mörkum og svo töpum við næsta leik á móti ÍBV heima. Við erum að reyna að finna þennan stöðugleika og hingað til hefur það gengið. Við erum áfram á tánum,“ sagði Grétar að lokum.
Olís-deild karla Haukar FH Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Leik lokið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira