„Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 24. september 2026 22:21 Aron Pálmarsson fylgist með sínum mönnum af hliðarlínunni í kvöld. Vísir/Diego Aron Pálmarsson, þjálfari FH, gat verið stoltur af sínu liði þrátt fyrir eins marks tap gegn Haukum í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. „
Ég er bara stoltur af strákunum. Úr nánast töpuðum leik þegar það voru 5-6 mínútur eftir í það að koma okkur allavega í þessa stöðu. Það var frábærlega gert, en ógeðslega svekkjandi í lokin að ná ekki að klára það,“ sagði Aron í leikslok. FH-ingar voru að elta svo gott sem allan leikinn, en þrátt fyrir það virtist liðið alltaf hafa trú á því að geta snúið dæminu við. „Við erum með mikið sjálfstraust sóknarlega og treystum mikið á það þessa dagana. Ég verð líka að gefa liðinu mínu það að þeir gerðu nákvæmlega eins og ég vildi varnarlega í þessum leik. Ég valdi bara vitlaust leikskipulag,“ sagði Aron. „Það gekk upp það sem ég lagði upp með varnarlega og við vorum að gefa þeim færin sem ég vildi sjá að þeir væru að skjóta úr en þeir bara nýttu þau. Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig.“ Eins og sönnum Hafnarfjarðarslagi sæmir urði læti í fyrri hálfleik og Darri Aronsson, leikmaður Hauka, fékk að líta beint rautt spjald. Aron gat þó lítið tjáð sig um það sem gekk á. „Það var einmitt verið að spyrja mig út í þetta og ég mundi ekki einu sinni eftir rauða spjaldinu, það var svo mikið búið að gerast síðan þá. Ég þarf bara að kíkja á þetta aftur því ég man ekki einu sinni hvað hann gerði.“ Þá tekur Aron undir að það virðist vera í eðli viðureigna þessara liða að leita í þá spennu sem við fengum að sjá í lokin. „Það virðist vera. Fyrst að þessi endaði í svona spennu. Haukunum leið betur en okkur og við þurftum að taka sénsa síðustu fimm mínúturnar. Við sendum tvo menn aðeins framar og reyndum að stytta sóknirnar þeirra, sem gekk upp. Jón Þórarinn var frábær í markinu. Varði nokkra mikilvæga bolta og kom okkur inn í þetta og við nýttum færin vel. Ég er stoltur af því en auðvitað ógeðslega svekktur að tapa.“ Þetta var þó aðeins fyrsta tap FH á tímabilinu og liðið siur í öðru sæti deildarinnar eftir fjórar umferðir. „Það sem ég tek úr þessum leik er hvað liðið er gott að aðlagast. Við erum með ákveðið kerfi, bæði varnar- og sóknarlega, en gerum litlar breytingar fyrir hvern andstæðing og ég er ógeðslega ánægður með það hvernig leikmennirnir taka það til sín í dag. Mér fannst þetta að mörgu leyti besti leikurinn hingað til, en Haukarnir bara nýttu sína sénsa. Ég þarf að banka hausnum svolítið í vegg út af því, óreyndi þjálfarinn,“ sagði Aron léttur að lokum.
Olís-deild karla FH Haukar Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport FH - Þróttur | Mikilvægt fyrir titilbaráttuna að fá sigur Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira