Innlent

Tólf með réttar­stöðu sak­bornings vegna and­láts á Stuðlum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Meðferðarheimilið Stuðlar er til húsa í Grafarvoginum í Reykjavík.
Meðferðarheimilið Stuðlar er til húsa í Grafarvoginum í Reykjavík. vísir/vilhelm

Rannsókn lögreglunnar á bruna á meðferðarstofnuninni Stuðlum fyrir um tveimur árum er lokið og komin á borð héraðssaksóknara. Fyrst var greint frá þessu á vef RÚV. Sautján ára drengur, Geir Örn Jacobsen, lést í brunanum og starfsmaður Stuðla slasaðist.

Í frétt RÚV segir að tólf séu með réttarstöðu sakbornings hvað varðar manndráp af gáleysi. Greint var frá því í sumar að málið væri komið til ákærusviðs og að tíu væru með réttarstöðu sakbornings. Í frétt RÚV í gær segir að meðal þeirra séu Óskar Jósefsson forstjóri Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna.

Vísir greindi frá því í mars að rannsókn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hefði leitt í ljós alvarlega annmarka á brunavörnum á Stuðlum, sem hefðu haft veruleg áhrif á öryggi og mannslíf.

„Á árunum fyrir eldsvoðann voru ítrekað gerðar kröfur um úrbætur á brunavörnum gagnvart Ríkiseignum, sem eiganda mannvirkisins. Kröfur um úrbætur voru bæði gerðar í kjölfar hefðbundins eldvarnareftirlits Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og við framkvæmd öryggis- og lokaúttekta byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Þrátt fyrir það voru nauðsynlegar úrbætur ekki gerðar,“ sagði í tilkynningu um skýrslu HMS.

Geir Örn var í neyðarvistun á Stuðlum þegar hann lést í eldsvoðanum en í skýrslunni sagði að ef brunavarnir hefðu verið virkar hefði verið hægt að koma í veg fyrir mannslát.


Tengdar fréttir

Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann

Faðir drengs sem lést í eldsvoða á Stuðlum segir að kerfið sem átti að bjarga barninu sínu hafi drepið það. Í rannsókn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að koma hefði mátt í veg fyrir mannslát ef brunavarnir hefðu verið virkar. Níu eru með stöðu sakbornings í málinu.

Telja brotið gegn réttindum barna og íhuga málaferli

Fjölskyldur sem hafa misst syni og lýsa áralangri baráttu við kerfið skoða lagalega stöðu sína og telja að gróflega hafi verið brotið á réttindum barnanna. Faðir drengs sem lést í bruna á Stuðlum segir málaferli virðast þurfa til að eitthvað breytist. Lögregla rannsakar enn brunann og tveir eru með réttarstöðu sakbornings.

„Barnið mitt dó á ykkar vakt“

„Það er löngu komin tími til að þú, Guðmundur Ingi og þitt ráðuneyti, hysjið upp um ykkur, takið ábyrgð og sýnið það í verki, áður en að fleiri börn deyja á ykkar vakt. Því barnið mitt dó á ykkar vakt og það er blákaldur sannleikurinn,“ skrifar móðir sautján ára drengs sem lést í eldsvoðanum á Stuðlum fyrir ári síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×