„Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. september 2026 09:25 Gísli Ægir segist ekki muna eftir öðru eins ástandi á veg. Veitingahúsarekandi á Bíldudal segir vegi í heimabyggðinni vera algjörlega í ólestri en þúsundir hafa horft á myndband þar sem má sjá hann keyra holóttan veg í Arnarfirði. Hann segir ástandið aldrei hafa verið svo slæmt líkt og nú.
Rætt er við Gísla Ægi Ágútsson verta á Vegamótum á Bíldudal í Bítinu á Bylgjunni um málið. Hann birti myndband af akstri sínum frá Bíldudal í Arnarfirði á Facebook en þar má sjá fjölda djúpra hola og grínast Gísli með að það megi keyra veginn á tíu kílómetra hraða, en ekki meira. Myndbandið má sjá neðar í fréttinni. „Ég myndi nú bara segja að þetta væri ófært sko. Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð. Það hefur nú oft mikið af holum en þær eru orðnar svo fjári djúpar, þú ert bara á hossinu. Þetta var ekki einu sinni versti kaflinn sem ég setti í þetta vídjó,“ segir Gísli. Hann segir umræddan veg vinsælan meðal flutningabílstjóra því á þessari leið sé hægt að fara einn fjallveg í stað þriggja og hann sé því mikið tekinn á leiðinni í Flókalund. „Það átti nú held ég að vera búið að bjóða þennan veg, sem er ekki fyrirsjáanlegt að verði gert. Eins og fyrir minn bissness, nú er ég með veitingastað og verslun hérna á Bíldudal, Vegamót. Við fáum mikla umferð sem kemur keyrandi að sunnan og fer út að Látrabjargi og fer inn á Dynjanda, en hún keyrir meira og minna Barðaströndina, yfir kleifann hérna, út á bjarg og ég vil meina að staðirnir hérna, Patreksfjörður, Tálknafjörður og Bíldudalur, við fáum ekki traffíkina hérna í gegn hjá okkur af því að þetta er náttúrulega bara merkt torfært og fólk vill keyra hring, ekki fram og til baka eins og við viljum flest.“ Um leið og þessi vegur væri orðinn frambærilegur yrðu sumarviðskiptin mun blómlegri og renna sterkari stoðum undir ferðaþjónustu á sunnanverðum Vestfjörðum. Hann segir margt í gangi í vegaframkvæmdum sem sé samgöngubót meðal annars vegur yfir Dynjandisheiði en segist þó sakna þess að vetrarþjónusta fyrir þann veg sé ekki í boði um helgar. Eru Vestfirðingar kannski orðnir vanir þessu? Gera sér ekki vonir um svakalegar samgöngubætur allt í einu? „Væntingarnar hjá mér eru ekki háar, það er bara að maður geti kannski keyrt á sjötíu en ekki tíu.“
Vesturbyggð Samgöngumál Bítið Tengdar fréttir Syngjandi kaupfélagsstjóri á Bíldudal Staðurinn er eina verslunin á staðnum, veitingastaðurinn, kaffihúsið og barinn í bænum, auk þess að vera félagsmiðstöð bæjarbúa. Hér erum við að tala um Vegamót á Bíldudal þar sem kaupfélagsstjórinn á það til að taka upp gítarinn og spila og syngja fyrir viðskiptavini. 15. ágúst 2022 21:16 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira
Syngjandi kaupfélagsstjóri á Bíldudal Staðurinn er eina verslunin á staðnum, veitingastaðurinn, kaffihúsið og barinn í bænum, auk þess að vera félagsmiðstöð bæjarbúa. Hér erum við að tala um Vegamót á Bíldudal þar sem kaupfélagsstjórinn á það til að taka upp gítarinn og spila og syngja fyrir viðskiptavini. 15. ágúst 2022 21:16