Atvinnulíf

Stjórn­endur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnu­stöðum eykst

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Ragnhildi Bjarkadóttur sálfræðing hjá Auðnast þekkja margir. Enda veit hún að vandamálin sem geta komið upp á vinnustöðum eru ekki bara alls konar heldur líka oft í beinu samhengi við tíðarandann og það sem er að gerast hverju sinni. FOBO er til dæmis nýtt fyrirbæri.
Ragnhildi Bjarkadóttur sálfræðing hjá Auðnast þekkja margir. Enda veit hún að vandamálin sem geta komið upp á vinnustöðum eru ekki bara alls konar heldur líka oft í beinu samhengi við tíðarandann og það sem er að gerast hverju sinni. FOBO er til dæmis nýtt fyrirbæri. Vísir/Anton Brink

„Við þurfum að búa til breytingastjórnun 2.0. Við þurfum að átta okkur á því hvernig við ætlum að starfa í breytingaumhverfi sem hefur kannski upphaf en engan endi,“ segir Ragnhildur Bjarkadóttir hjá Auðnast.

Því já – þetta er staðan:

Þegar breytingar hafa átt sér stað áður, sjáum við oftast fyrir endann á þeim svona þannig. Með gervigreindina í farabroddi breytinga nú er hins vegar nokkuð ljóst að næstu árin og jafnvel áratug munu breytingar halda áfram að vera.

„Breytingastjórnun er þar af leiðandi eitthvað sem einfaldlega heldur áfram að þurfa að vera – alltaf,“ segir Ragnhildur en hún er klínískur sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd.

„Það sem gerist í Covid er að við verðum svo ofsalega meðvituð um heilsu okkar, þannig að við verðum svo hrædd um hvernig við eigum að hlúa að okkur,“ nefnir Ragnhildur sem dæmi, en bætir við:

„Svo auðvitað komumst við í gegnum þann skafl og þá mæta okkur aðrar áskoranir sem hafa kannski meira verið rekstrarlegar og efnahagslegar. Þá vitum við bara hvað gerist – þá tekur það svolítið yfirhöndina.“

Loks komin út úr Covid fer heimurinn á margfaldan hraða í breytingum og þróun miðað við nokkru sinni fyrr. Enda fylgja þessari hröðu tækniþróun nýjar áskoranir.

Við erum komin með nýtt hugtak sem heitir FOBO – Fear of Becoming Obsolete – eða óttinn við að verða úreltur,“ 

segir Ragnhildur.

Mannauðsdagurinn 2026 verður haldinn föstudaginn 2. október. Af því tilefni fjallar Atvinnulífið um mannauðsmálin í dag og á morgun. Mannauðsdagurinn er stór og fjölsóttur viðburður, dagskrána má sjá HÉR.

Ekki draga úr mannauðsvaktinni

Á Mannauðsdeginum mun Ragnhildur halda erindi undir yfirskriftinni Framtíð vinnustaða: Er hún mannlegri en við höldum?

Ragnhildur á auðvelt með að útskýra fyrir okkur hvernig áskoranir og áherslur eiga það til að breytast. Núna upplifa til dæmis margir ákveðið bakslag í mannauðsmálum, þar sem mannauðsfólki fækkar jafnvel í framkvæmdastjórnarhópum eða mikilvægi þeirra telst minna en áður.

Að mati Ragnhildar felast hins vegar einmitt tækifæri til að efla mannauðsteymin nú.

Ragnhildur setur hlutina í smá samhengi fyrir okkur:

Í Covid fékk mannauðsfólk stórt pláss við borðið og mikil áhersla var lögð á heilsueflingu og samskipti. Í kjölfar efnahagslegra áskorana og kólnunar hagkerfisins varð hins vegar ákveðið bakslag þar sem rekstrarlegir þættir tóku yfir.

„Þegar okkur líður vel höfum við tilhneigingu til að taka ekki púlsinn. Þá fara heilsuefling, forvarnir og heilbrigð samskipti að mæta afgangi og rekstrarþættirnir taka yfirhöndina,“ segir Ragnhildur.

Þannig er staðan einmitt nú: Menn sjá fyrir sér að gervigreindin muni einfaldlega geta leyst ýmis verkefni mannauðsfólks af hólmi.

Eða hvað?

Nei, málin eru víst ekki svo einföld að mati Ragnhildar:

Þó að gervigreind sé ekki heilsuógn á borð við heimsfaraldur er hún fagleg og tilvistarleg áskorun sem snertir sjálfsmynd starfsfólks. 

Fólk upplifir alla flóruna af tilfinningum: sumir fagna hagræðingu á meðan aðrir upplifa að sérþekking þeirra sé einskis virði.

Hugtakið FOBO er skammstöfun fyrir Fear of Becoming Obsolete: Óttinn við að verða úreltur.

Og þegar Ragnhildur skýrir út fyrir okkur hvers vegna FOBO er fylgifiskur þeirrar þróunar sem nú er, meika hlutirnir meira að segja smá sens:

„Því hvað gerir heilinn þegar við vitum ekki hvernig breytingin mun enda? Hann fer að skálda í eyðurnar – og við höfum tilhneigingu til að skálda verstu mögulegu útgáfuna,“ segir Ragnhildur og bætir við:

Annar aðilinn fagnar því að verkefni sem tók fjóra daga taki nú fjóra tíma, en hinn hugsar: 

„En þetta er sérfræðiþekkingin mín – hvað verður um mig?““

Við höfum lengi talað um FOMO - bæði í vinnu og tengt einkalífi (Fear Of Missing Out) en Ragnhildur segir FOBO sýna sig víða núna. Því auðvitað sé staðan svo að margir óttast að úreldast fyrst gervigreindinni vex svona hratt ásmeginn. Á sama tíma fagna sumir og staðan því oft nokkuð flókin.Vísir/Anton Brink

Stjórnendur þurfa stuðning

Ragnhildur segir ekki ólíklegt að næstu misseri og ár þurfi líka að huga sérstaklega að stuðningi og þjálfun fyrir stjórnendur líka.

„Stjórnendur standa nefnilega í tvöfaldri eldlínu: Annars vegar eiga þeir að styðja við og róa sitt fólk í gegnum óvissuna, en á sama tíma eru þeir sjálfir að takast á við óvissu og gagngera umbreytingu á eigin starfi,“ segir Ragnhildur.

En ekki nóg með það: Svo miklar breytingar eru í atvinnulífinu að hlutverk stjórnenda eru að breytast verulega.

Fólk fer úr því að vera „managers“ yfir í að vera „leaders“. Þar fara persónulegu karaktereinkennin og samskiptahæfnin að skipta öllu máli.“

Það sem þetta þýðir þá í raun er að þótt tækninni takist að leysa af hólmi ýmis hefðbundin verkefni, verkferla og fleira, þarf að huga að því verkefni hvernig hægt er að þjálfa stjórnendur frá því að vera verkefnastjórnandi og yfir í að verða leiðtogi; tvö ólík hlutverk í raun.

„Tilfinningagreind, samkennd, virk hlustun og dómgreind verða mikilvægustu verkfærin. Það krefst þess að stjórnendur fái þjálfun í að eiga samtalið og skapa sálrænt öryggi,“ nefnir Ragnhildur sem dæmi.

Ragnhildur leggur líka áherslu á að stjórnendur þurfi að læra að grípa merkin snemma og að þora að eiga hið svokallaða heilsueflandi samtal.

„Tæknilega innleiðingin á gervigreindinni getur litið fullkomlega út á blaði, en stærsti forspárþátturinn fyrir því að innleiðing misheppnist er ef starfsfólkið er skilið eftir og tekur ekki virkan þátt. Þess vegna verður mannlegi þátturinn að fá jafn mikið pláss og tæknilausnirnar sjálfar.“

Ragnhildur segir mörg tækifæri nú fyrir mannauðsfólk. Því við blasi margar áskoranir, þar á meðal breytt hlutverk stjórnenda. Að hennar mati er því ekki rétti tímapunkturinn fyrir vinnustaði nú að draga úr vægi mannauðsteyma. Hið mannlega er að verða mikilvægara en nokkru sinni fyrr.Vísir/Anton Brink

Þrenn lykilatriði

Í erindinu sínu á föstudag segist Ragnhildur ætla að fara vel yfir þrjá meginþætti sem hún telur skipta miklu máli að rýna vel í með mannauðsfólki.

Þessi þrjú atriði – sem Ragnhildur mun fara nánar út í – eru: 

Sálrænt öryggi, skýrleiki og síðan tilgangur og faglegt virði.

Í yfirferðinni mun Ragnhildur gefa gestum ráðstefnunnar hagnýt verkfæri til að mæta þessum nýju tímum.

„Við getum vanist ótrúlegustu hlutum, en við erum rétt að stíga inn í þennan nýja veruleika núna. Í því felast gríðarleg sóknartækifæri fyrir okkur öll sem erum að hlúa að sálrænu og sálfélagslegu öryggi á vinnustöðum,“ segir Ragnhildur og bætir við:

Breytingarnar eru stöðugar og sjóndeildarhringurinn alltaf á hreyfingu. 

En með því að setja mannlega þáttinn í öndvegi og gefa öllum röddum rými – bæði þeim sem fagna og þeim sem efast – tryggjum við að fólkið vaxi með tækninni en verði ekki undir henni.“


Tengdar fréttir

Samtalshermir til að æfa okkur fyrir erfiðu og viðkvæmu samtölin

„Ég áttaði mig á því mjög fljótt hversu mikil áhrif þetta var að hafa á nemendur. Sem á augabragði gátu nú breytt öllu rituðu námsefni í hljóðefni, lært í göngutúrum eða hvar sem þeim hentaði, spurt spurninga og sniðið kennsluna að því hvernig þau vildu læra en ekki hvernig ég vildi kenna,“ segir Hinrik Jósafat Atlason, stofnandi og framkvæmdastjóri Atlas Primer.

Íþróttafræðin inn á vinnustaðinn: Yfirmenn ekki lengur alvitri einhyrningurinn

Við sjáum það oft í hillingum að yfirfæra íþróttafræðin og keppnisandann yfir á vinnustaðina. Enda er gaman að leita í reynslubrunn Daða Rafnssonar, íþróttasálfræðiráðgjafa og afreksþjálfara, fagstjóra Afrekssviðs Menntaskólans í Kópavogi og doktorsnema við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík.

„Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“

„Við þurfum að efla okkur í aðlögunarhæfni því breytingarnar sem fram undan eru verða svo svakalega örar,“ segir Adriana Karolina Pétursdóttir, formaður Mannauðs og framkvæmdastjóri mannauðssviðs Rio Tinto og bætir við: „Það sem við lærðum í gær getur verið úrelt á morgun.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×