Viðskipti innlent

Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir

Bjarki Sigurðsson skrifar
Helgi Vilhjálmsson er eigandi Góu.
Helgi Vilhjálmsson er eigandi Góu. Vísir/MHH

Allar fjórar stærstu sælgætisgerðir landsins skiluðu hagnaði 2025. Aðeins þær stærstu, Nói Síríus og Góa-Linda, greiða hluthöfum arð þetta árið.

Nói Síríus

Tekjurnar eru langmestar hjá Nóa Síríus, sem var á síðasta ári að fullu í eigu norska fyrirtækisins Orkla. Á þessu ári eignaðist sjóður Alfa Framtaks ehf. fyrirtækið. Tekjurnar námu tæpum 5,5 milljörðum króna á síðasta ári og hækkuðu örlítið milli ára, um tæp 2,4 prósent. 

Hagnaður ársins nam 421 milljón króna, sem gerir hagnaðarhlutfall upp á rúm 7,7 prósent. Árið áður var hagnaðurinn 246,5 milljónir króna. Launakostnaður fyrirtækisins dróst saman milli ára og fækkaði stöðugildum um fimmtán. 

Stjórn félagsins leggur til að greiddar verði 250 milljónir króna til hluthafa í arðgreiðslur. 

Nói Síríus er aftur í innlendri eigu.

Góa-Linda

Rekstur Góu gekk ekki jafn vel og hjá Nóa þrátt fyrir aukna sölu. Tekjur félagsins námu tæpum 2,4 milljörðum króna og jukust um 32 prósent. Hagnaðurinn dróst þó saman og var tæpar 165 milljónir samanborið við 183 milljónir árið áður. Störfum fjölgaði úr 47 í sextíu á árinu.

Árið 2024 greiddi félagið hluthöfum 61 milljón króna í arð og 130 milljónir árið áður. Í ár er lagt til að greiðslan nemi 140 milljónum króna. Félagið er í 94 prósent eigu Helga Vilhjálmssonar, oftast kenndur við Góu. Kristín, Ingunn og Rut, dætur Helga, eiga allar tvö prósent á haus. 

Góa var stofnuð 1968.

Freyja

Í ársreikningi Freyju sælgætisgerðar segir að reksturinn hafi verið þungur 2025. Rekstrartekjur námu tæplega 1,9 milljörðum króna og hagnaður var 73 milljónir. Félagið er í meirihlutaeigu Mata-systkinanna en stjórn félagsins ákvað að greiða hluthöfum ekki arð þetta árið. Starfsmenn voru 55 í fyrra samanborið við 53 árið áður. 

Pétur Thor Gunnarsson er framkvæmdastjóri Freyju.Freyja

Kólus

Kólus er minnsta sælgætisgerðin af þessum fjórum og námu tekjur félagsins 826 milljónum í fyrra og jukust um tæp tuttugu prósent. Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist og nam 85 milljónum króna sem gerir hagnaðarhlutfall upp á 10,3 prósent. Jón S. Kjartansson og Fjarðarás 10 ehf. eiga félagið til helminga. Fjarðarás 10 er að fullu í eigu Lilju Þorgeirsdóttur. Þau greiða sér ekki arð þetta árið. 

Þristur er líklegast það sælgæti sem flestir gæða sér á frá Kólus.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×