Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Starri Freyr Jónsson skrifar 5. október 2026 11:20 „Okkar helsta sérsvið er að aðstoða viðskiptavini okkar við að búa til eitthvað alveg einstakt fyrir heimilið,“ segir Harpa Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Formus, en fyrirtækið er nýtt á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki. Formus er í fyrsta sinn á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki. Harpa Gunnarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Formus, segir viðurkenninguna hafa komið skemmtilega á óvart enda hafi markmiðið aldrei sérstaklega verið að komast á listann. Áherslan hafi einfaldlega verið á að vanda til verka, sinna viðskiptavinum vel og byggja upp traustan rekstur. „
Þetta hefur mikla þýðingu fyrir okkur öll. Við leggjum okkur mikið fram um að vanda til verka og halda úti traustum og ábyrgum rekstri og þessi viðurkenning er staðfesting á því,“ segir Harpa. Hún segir góðan rekstur ekki síst byggjast á fólkinu sem stendur að baki fyrirtækinu. „Traustur og góður rekstur byggist einna helst á góðu starfsfólki því það er fagmennska þess og metnaður sem býr til góðan rekstur. Það er því mjög ánægjulegt fyrir starfsfólkið okkar að fá þessa viðurkenningu.“ Viðurkenningin skipti einnig máli út á við. Fyrir viðskiptavini sé mikilvægt að geta treyst því að fyrirtækið sem þeir skipta við standi á traustum fjárhagslegum grunni. Ekkert verkefni eins Formus sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu hágæða sérsmíðaðra innréttinga, innihurða og húsgagna. Þar eru möguleikarnir fjölbreyttir enda eru engar fyrirfram gefnar takmarkanir á stærðum eða efnisvali. „Okkar helsta sérsvið er að aðstoða viðskiptavini okkar við að búa til eitthvað alveg einstakt fyrir heimilið,“ segir Harpa. Hjá Formus starfa reyndir innanhússarkitektar sem sinna teikniþjónustu og ráðgjöf og fyrirtækið vinnur jafnframt náið með utanaðkomandi arkitektum og hönnuðum að framleiðslu eftir teikningum þeirra og hönnun. Innréttingarnar eru sérsmíðaðar í handverksverkstæðum fyrirtækisins í Evrópu. Sjálf er Harpa menntaður sjúkraþjálfari frá Háskóla Íslands og starfaði við fagið um árabil. Áhugi á hönnun og arkitektúr hafði þó lengi verið til staðar. Þegar hún fór sjálf í gegnum ferlið við að innrétta hús fyrir fjölskylduna kviknaði hugmyndin að Formus. Harpa taldi vanta fyrirtæki á markaðinn sem gæti boðið heildarlausn í sérsmíðuðum innréttingum, þar sem þjónusta innanhússarkitekta og úrval sérvara færi saman. Hún hóf starfsemina í litlu sýningarými með einum starfsmanni en frá þeim tíma hefur fyrirtækið vaxið og þróast hratt. Formus var stofnað í núverandi mynd árið 2022 þegar fleiri hluthafar gengu til liðs við félagið. Um svipað leyti flutti starfsemin í Hlíðasmára 3 í Kópavogi þar sem fyrirtækið rekur í dag 300 fermetra sýningarsal, hönnunarstúdíó og söluskrifstofu. Ýmislegt í pípunum Það er því kannski við hæfi að Formus sé nú í fyrsta sinn komið í hóp Framúrskarandi fyrirtækja. Harpa segir þó að það hafi ekki verið sérstakt markmið í sjálfu sér. „Við vorum ekki sérstaklega að stefna að því og það kom því skemmtilega á óvart þegar það raungerðist. Áherslan hjá okkur hefur alltaf verið á reksturinn sjálfan, að vanda til verka og sinna viðskiptavinum okkar vel. Það er ánægjulegt að fá viðurkenningu sem staðfestir að við erum á réttri leið með reksturinn okkar.“ Ýmislegt er jafnframt í pípunum hjá Formus. Harpa vill ekki ljóstra of miklu upp strax en segir að nýjungar muni líta dagsins ljós á næstu mánuðum. „Það er aðeins of snemmt að segja frá þeim núna, en það sem liggur fyrir er að halda áfram að þróa og bjóða þjónustu okkar og lausnir, með sömu áherslu á gæði og fagmennsku og hingað til.“ Fyrst er þó tilefni til að fagna þessum áfanga. Fulltrúar Formus ætla að mæta í Hörpu 28. október þegar heildarlisti Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki verður kynntur. „Við ætlum klárlega að mæta og hlökkum til að taka þátt í viðburðinum með öðrum fyrirtækjum á listanum,“ segir Harpa.
Framúrskarandi fyrirtæki 2026 Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Frá löngum gátlista yfir í flennigír og fögnuð Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrirtæki skara raunverulega fram úr Sjá meira