Handbolti

Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag

Aron Guðmundsson skrifar
Haukur Þrastarson kom að níu mörkum í kvöld
Haukur Þrastarson kom að níu mörkum í kvöld Vísir/Getty

Haukur Þrastarson skoraði sjö mörk er lið hans Rhein Neckar Löwen gerði jafntefli gegn lærisveinum Rúnars Sigtryggssonar í liði Wetzlar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 30-30.

Leikurinn var kaflaskiptur. Löwen leiddi nær allan leikinn en þegar líða tók á seinni hálfleikinn tóku lærisveinar Rúnars við sér, brúuðu bilið og komust mest þremur mörkum yfir. 

Forskotinu tókst þeim hins vegar ekki að halda og mark frá Gino Steenaerts á síðustu mínútu leiksins sá til þess að liðin skildu jöfn, 30-30. 

Auk þess sem Haukur skoraði sjö mörk lagði hann upp tvö önnur. Löwen vermir 10. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar sem stendur.

Wetzlar er í 17. sæti með tvö stig og er enn í leit að sínum fyrsta sigri á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×