Handbolti

FH hélt Sel­fossi á botninum

Sindri Sverrisson skrifar
Ómar Darri Sigurgeirsson skoraði sjö mörk í kvöld.
Ómar Darri Sigurgeirsson skoraði sjö mörk í kvöld. vísir/Diego

FH kom sér aftur á sigurbraut í kvöld eftir tapið nauma í Hafnarfjarðarslagnum í síðustu umferð en liðið vann Selfoss á útivelli, 36-31.

Tapið þýðir að Selfyssingar sitja enn á botni deildarinnar án sigurs, með eitt stig, en FH er í 4. Sæti með sjö stig, þremur stigum á eftir Haukum.

FH-ingar skoruðu 21 mark í fyrri hálfleik í kvöld og voru sex mörkum yfir að honum loknum. Þeir héldu svo Selfossi í þægilegri fjarlægð allan seinni hálfleikinn og lönduðu fimm marka sigri.

Ómar Darri Sigurgeirsson var markahæstur hjá FH með sjö mörk úr níu skotum, Jón Bjarni Ólafsson skoraði sex og Eiður Rafn Valsson fimm. Hjá Selfossi var Hákon Garri Gestsson markahæstur með sjö mörk úr fjórtán skotum en Tryggvi Sigurberg Traustason skoraði sex.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×