Handbolti

Ómar marka­hæstur í öruggum sigri

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ómar Ingi skoraði níu mörk í dag.
Ómar Ingi skoraði níu mörk í dag. Getty

Ómar Ingi Magnússon var markahæstur í liði Magdeburgar í öruggum sigri á Erlangen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Magdeburg náði forystunni snemma leiks og hélt henni allt til loka í heldur óspennandi leik við Erlangen í dag.

Landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon er kominn á fullt eftir meiðsli sem hrjáðu hann í byrjun hausts og hann skoraði níu mörk fyrir Magdeburg í 35-28 sigri í dag. Hann var markahæstur á vellinum en vinstri skyttan Felix Claar skoraði sjö mörk fyrir Magdeburg.

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraðiu þrjú mörk og lagði upp fimm.

Magdeburg er á toppi þýsku deildarinnar með 14 stig af 16 mögulegum eftir átta leiki. Flensburg á þó leik inni og er með 13 stig og getur því hirt toppsætið með sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×