Handbolti

Dýr­mætur sigur HK-inga

Sindri Sverrisson skrifar
Örn Alexandersson var markahæstur HK-inga í kvöld.
Örn Alexandersson var markahæstur HK-inga í kvöld. HK.is

HK kom sér upp fyrir Víking og Stjörnuna með því að leggja Stjörnuna að velli í Kórnum í kvöld, 35-31, í Olís-deild karla í handbolta.

Spenna var í leiknum lengst af og Tandri Már Konráðsson minnkaði muninn í tvö mörk þegar sex mínútur voru eftir, 31-29. Aftur var munurinn tvö mörk, 32-30, þegar ein mínúta og 40 sekúndur voru eftir en nær komst Stjarnan ekki og niðurstaðan fjögurra marka sigur heimamanna.

Patrekur Guðni Þorbergsson var í miklu stuði í marki HK á lokakaflanum og endaði með 35% markvörslu en hann varði 8 af 23 skotum sem hann fékk á sig.

Örn Alexandersson var markahæstur HK með 8 mörk úr 15 skotum og Trúgvi Hávardsson, hetjan úr sigrinum ótrúlega í Eyjum í síðustu umferð, skoraði 7 mörk úr 12 skotum. Tómas Sigurðarson skoraði einnig 7 mörk en aðeins úr 10 skotum.

Hjá Stjörnunni var Ísak Logi Einarsson markahæstur með 9 mörk úr 16 skotum en Jóel Bernburg skoraði 7 mörk úr 9 skotum.

Eftir þrjú töp í fyrstu þremur leikjunum hefur HK nú unnið tvo leiki í röð og er með fjögur stig líkt og ÍBV, Fram og Þór, í 6.-9. sæti. Stjarnan er hins vegar í 10. sæti með þrjú stig.

Næsti leikur HK er við Aftureldingu í Mosfellsbæ 15. október en Stjarnan tekur á móti KA 16. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×