Íslenski boltinn

Höttur slítur sam­starfi og FHL heyrir sögunni til

Sindri Sverrisson skrifar
FHL vann Lengjudeildina með yfirburðum árið 2024 og komst upp í efstu deild kvenna í fótbolta, fyrst liða af Austurlandi í þrjá áratugi.
FHL vann Lengjudeildina með yfirburðum árið 2024 og komst upp í efstu deild kvenna í fótbolta, fyrst liða af Austurlandi í þrjá áratugi. FHL fótbolti

Höttur frá Egilsstöðum mun tefla fram liði undir sínu nafni í Lengjudeild kvenna í fótbolta á næstu leiktíð eftir að hafa slitið samstarfi við Fjarðabyggð og Leikni Fáskrúðsfirði.

FHL náði sögulegum árangri þegar liðið vann sig upp í Bestu deildina og spilaði þar í fyrra, fyrst liða frá Austurlandi síðan Höttur lék þar árið 1994.

FHL féll hins vegar strax aftur niður í Lengjudeildina og endaði þar í 6. sæti á nýafstaðinni leiktíð.

Nú hefur Höttur rekstrarfélag tilkynnt að búið sé að slíta samstarfi um rekstur FHL. 

„Ástæður uppsagnarinnar eru meðal annars þær að meginþorri leikmanna kemur frá Hetti og nú er lag að spila meistaraflokki kvenna undir merkjum Hattar. Samkvæmt aðildarsamningi RH og KFA tekur Höttur sæti félagsins við slit og mun því leika í Lengjudeildinni að ári,“ segir í tilkynningu Hattar rekstrarfélags.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×