Handbolti

FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ómar Darri Sigurgeirsson var mjög öflugur í liði FH í kvöld.
Ómar Darri Sigurgeirsson var mjög öflugur í liði FH í kvöld. vísir/Diego

FH komst upp í annað sæti Olís deildar karla í handbolta í kvöld eftir fjögurra marka sigur á HK á útivelli, 33-29.

FH var þremur mörkum yfir í hálfleik, 18-15, og komst mest sex mörkum yfir í seinni hálfleiknum.

Ómar Darri Sigurgeirsson skoraði átta mörk fyrir FH í leiknum í kvöld og gaf fimm stoðsendingar að auki.

Brynjar Narfi Arndal, Einar Rafn Eiðsson og Einar Örn Sindrason voru síðan allir með fjögur mörk og Eiður Rafn Valsson skoraði þrjú mörk. Jón Þórarinn Þorsteinsson varði síðan þrettán skot.

Örn Alexandersson, Leó Snær Pétursson og Kári Tómas Hauksson voru markahæstir hjá HK með fimm mörk og Brynjar Vignir Sigurjónsson varði vel eða sextán skot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×