Innlent

Vilja hækka samræðisaldur

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Viktor Árnason, Ari Orrason formaður og Elvar Freyr Fossdal Sigfússon. Á mynd vantar Elísabetu Freyju Úlfarsdóttur.
Viktor Árnason, Ari Orrason formaður og Elvar Freyr Fossdal Sigfússon. Á mynd vantar Elísabetu Freyju Úlfarsdóttur. Aðsend

Ung Vinstri græn fordæma harðlega ákvörðun um að sýkna mann af ákæru fyrir nauðgun. Þá hvetja þau Alþingi til þess að hækka samræðisaldur.

Ný stjórn Ungra Vinstri grænna fundaði í fyrsta skipti í gær en Ari Orrason var kjörinn formaður ungliðahreyfingarinnar um miðjan mánuð. Það vakti athygli þar sem að í þingkosningunum árið 2024 skipaði Ari 2. sæti á lista Sósíalistaflokksins í Norðausturkjördæmi.

Í kjölfar fundarins var gefin út ályktun um nokkur málefni sem hafa verið til umfjöllunar undanfarnar vikur. Þar á meðal var ákvörðun Landsréttar um að sýkna mann sem hafði áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi fyrir kynferðisbrot. Stjórnin „fordæmir harkalega“ ákvörðunina.

„Jafnframt vill stjórnin taka undir með þeim sem hafa kallað eftir úttekt á meðferð kynferðisofbeldismála hjá dómskerfinu og að sérstök athygli verði beint að Landsrétti, þar sem hann hefur sýnt tilhneigingu til þess að sýkna þá sem hafa verið dæmdir fyrir nauðgun af héraðsdómi,“ segir í ályktuninni.

Fleiri hafa fordæmt sýknudóminn, þar á meðal BDSM-samtökin og Stígamót.

Líkamar og leg eigi að vera markaðsvara

„Stjórn UVG hvetur Alþingi til að hækka samræðisaldur einstaklinga til 18 ára aldurs og til dómsvalds Íslands að taka tilfellum af misnotkun barna alvarlega,“ segir í ályktuninni.

Að þeirra mati taki dómarastéttin slíku ofbeldi ekki nógu alvarlega. Dómar sem falla í slíkum málum teljist ekki við hæfi þegar alvarleiki brota sé tekinn til hliðsjónar. Það sé ólíðanlegt að löggjöf og dómsvald heimili kynferðisofbeldi gegn börnum af hálfu fullorðinna þar sem ekkert barn geti veitt samþykki.

„Vert er að rekja uppruna slíkrar gjafmildi stéttarinnar.“

Einnig fordæmir UVG ályktun Stjórnar ungra sjálfstæðismanna en þeir síðarnefndu töluðu þar fyrir því að staðgöngumæðrun yrði gerð heimil á Íslandi. UVG leggst hins vegar alfarið gegn því. 

„Hvorki líkamar kvenna né leg skulu vera gerð að markaðsvöru. Sú hugmynd að heimilun staðgöngumæðrunar auki frelsi kvenna stenst ekki skoðun þegar tekið er tillit til áhrifa félagslegra og efnahagslegra þátta í ákvarðanatöku tilvonandi staðgöngumæðra.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×