Lífið

Fundu ástina á Domino's

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ismael og Paula búa á Suðurnesjum með strákunum sínum tveimur.
Ismael og Paula búa á Suðurnesjum með strákunum sínum tveimur.

Domino's-starfsmennirnir Ismael Þór Ólafsson og Paula Izabela giftu sig um helgina en þau féllu hugi saman á Domino's. Ismael hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 2014 og Isabela frá árinu 2017.

Pítsustaðurinn Domino's birti færslu um hjónabandið á Facebook.

„Ástin blómstrar á Domino’s! Um helgina gengu þau Ismael og Paula í það heilaga, en þau kynntust á Domino’s þar sem þau starfa bæði enn í dag, Ismael sem svæðisstjóri og Paula sem fræðslustjóri,“ segir í færslunni.

Ismael og Paula fá sér margarítu í sínu fínasta pússi.

„Ismael hefur starfað hjá Domino’s frá árinu 2014 og Paula frá árinu 2017. Við óskum brúðhjónunum innilega til hamingju með ástina og hjónabandið!“ segir jafnframt í færslunni og fylgja með skemmtilegar myndir af hjónunum að borða Domino's-pítsu.

Hjónin búa á Suðurnesjum með strákunum sínum tveimur og hafa lagt sitt á vogarskálar Domino's hérlendis.

Domino's-pizza í brúðkaupsveislunni, ekki amalegt.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.