Tjá sig ekki um einstaka verktaka
Fjögur fyrirtæki sem störfuðu fyrir landeldisfyrirtækið First Water gera kröfur á félagið samtals upp á ríflega milljarð króna vegna meintra vanefnda. Lögregla hefur verið kölluð til vegna ágreinings milli verktaka og félagsins. First Water vísar ásökunum til föðurhúsanna. Félagið hafi í öllum tilvikum farið að lögum.