Ísland í dag - Þórunn Högna gerði pallinn flottan fyrir lítið

Einn flottasti stílisti landsins Þórunn Högnadóttir hefur gert pallinn hjá sér við sumarbústaðinn alveg einstaklega fallegan á mjög ódýran hátt. Þórunn velur oft að nota gömul húsgögn og gera þau upp og kaupa ódýrt á netinu og mála og flikka upp á hluti sem hún svo setur saman á einstakan hátt. Hún býr til skreytingar bæði úr eilífðar blómum og einnig plöntum sem hún tínir bæði í garðinum sínum í bænum og einnig kringum sumarbústaðinn. Hún breytir borðum í stóla og endurnýtir ótrúlegustu hluti. Og Þórunn gerir litlar veislur á ódýran og skemmtilegan máta. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og heimsótti Þórunni í sveitina einn sólar daginn.

9
13:09

Vinsælt í flokknum Ísland í dag