Þingmaður segir boðaðar breytingar á bótakerfinu galnar
Harðar deilur standa yfir á Alþingi um frumvarp sem bindur hækkanir örorku- og ellilífeyrisbóta við launavísitölu. Í dag eru bætur ákvarðaðar út frá launaþróun og byggist matið á kjarasamningsbundnum launahækkunum. Vísitalan tekur aftur á móti einnig til launaskriðs og hækkar hún almennt umfram hækkanir á bótagreiðslum. Viðbúið er að bætur muni því hækka en aðgerðin er hluti af stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og miðar að því að draga úr kjaragliðnun.