Mæður barna sem lentu í rútuslysi ósáttar við viðbrögðin
Neyðarlínan segist ekki hafa fengið fullnægjandi upplýsingar þegar bíll gjöreyðilagðist eftir aftanákeyrslu á hópferðabíl fullum af börnum fyrir tæpum tveimur vikum. Sjúkrabíll hefði verið sendur samstundis á vettvang hefðu þær borist. Börnin voru send áfram fótgangandi í skólasund, þrátt fyrir að sum hefðu hlotið minniháttar meiðsl. Foreldrar hafa áhyggjur.