KR

KR

Fréttir af Knattspyrnufélagi Reykjavíkur, KR, frá Reykjavík.

Fréttamynd

Sjáðu átta marka veislu í Vestur­bænum

KR-ingar halda áfram að bjóða upp á miklar markaveislur í sínum leikjum og það var enginn breyting á því þegar Skagamenn komu í heimsókn í Vesturbæinn í lokaleik ellefu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í gærkvöldi.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Lykil­maður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum

Makayla Soll, fyrirliði og lykilleikmaður kvennaliðs KR í fótbolta, úlnliðsbrotnaði á báðum höndum þegar hún lenti á vegg í leik gegn FHL í Fjarðabyggðarhöllinni um helgina. Þjálfari KR furðar sig á að spilað sé inni í höllinni og segir of stutt bil frá vellinum og í harða veggi hallarinnar.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vestur­bæinn

Landsliðskonan frábæra Sara Rún Hinriksdóttir hefur kvatt uppeldisfélag sitt Keflavík og er gengin í raðir KR. KR-ingar hafa einnig endurheimt Emmu Sóldísi Svan Hjördísardóttur og tryggt að Rebekka Rut Steingrímsdóttir haldi kyrru fyrir, og ætla sér greinilega stóra hluti í Bónus-deildinni í körfubolta á næstu leiktíð.

Körfubolti
Fréttamynd

Upp­gjörið: KR - KA 5-3 | Marka­veisla á Meistara­völlum

KR vann skemmti­legan 5-3 sigur á KA í níundu um­ferð Bestu deildar karla í kvöld. Heima­menn voru komnir í 3-0 for­ystu í hálf­leik og virtust vera búnir að klára leikinn strax í hálf­leik. En KA gafst ekki upp og gerði loka­mínúturnar afar spennandi áður en KR gerði út um leikinn í upp­bótatíma.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Restin var bara ekki með“

„Ég er bara grútfúll, sérstaklega með frammistöðuna í fyrri hálfleik,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, eftir 3-1 tap liðsins gegn KR í Bestu-deild karla í kvöld.

Fótbolti