Lét Netanjahú heyra það í símtali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“ „Af hverju í andskotanum þurfti Bibi að gera árás? Ég varð svo brjálaður. Ég lét hann vita af því. Hann hefur enga helvítis dómgreind. Ég sagði honum það.“ Þetta segir Donald Trump Bandaríkjaforseti um árás Ísraelshers á Líbanon í dag og samtal sem hann átti við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í kjölfarið. Erlent 14.6.2026 20:11
Friðarviðræður sagðar í uppnámi Aðalsamningamaður Íran sagði friðarviðræður við Bandaríkin í uppnámi eftir nýjustu loftárás Ísraela á Beirút, höfuðborg Líbanon. Þrír eru látnir og fimmtán særðir í úthverfum borgarinnar eftir árásina, að sögn yfirvalda í Líbanon. Þá hafa byggingar og verslanir orðið fyrir umtalsverðum skemmdum. Erlent 14.6.2026 17:04
„Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Alþjóðastjórnmálafræðingur segir langt frá því að friður sé í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar. Erlent 13.6.2026 12:38
Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Hezbollah-samtökin harðneituðu að samið yrði um vopnahlé án þess að Ísraelar hörfuðu alfarið úr Líbanon. Í harðorðri yfirlýsingu sagði leiðtogi samtakanna að viðræðurnar hefðu verið gagnslausar og niðurlæging fyrir Líbanon. Erlent 4. júní 2026 17:09
Samþykkja að koma á vopnahléi Leiðtogar Ísraels og Líbanon hafa samþykkt að vopnahléi verði komið á landanna á milli. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu Ísraels, Líbanon og Bandaríkjanna sem send var út í nótt. Samkvæmt samkomulaginu þarf Hezbollah að hætta öllum árásum á Ísrael og flytja alla liðsmenn sína frá suðurhluta Líbanon. Erlent 4. júní 2026 06:43
Áframhaldandi átök í Líbanon þrátt fyrir samkomulag Átök héldu áfram í Líbanon í nótt þrátt fyrir að Ísraelar og Hezbollah hafi samþykkt tillögu Bandaríkjamanna um staðbundið vopnahlé. Hezbollah gerði í nótt þrjár árásir á ísraelska skriðdreka og hermenn nærri þorpum í norðurhluta Ísrael og ríkismiðlar í Líbanon hafa greint frá árásum Ísraela í suðurhluta landsins. Erlent 2. júní 2026 06:37
Íranar gera árásir á Kúveit og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Yfirvöld í Kúveit greindu frá því í morgun að loftvarnir landsins hefðu verið virkjaðar vegna yfirstandandi eldflauga- og drónaárásar. Nokkrum mínútum síðar sögðust hernaðaryfirvöld í Bandaríkjunum hafa gert árásir á radar- og stjórnstöðvar í Íran yfir helgina. Erlent 1. júní 2026 07:01
Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Tugir voru drepnir í hörðum árásum Ísraela á Líbanon í gær og í nótt eftir að forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú hafði heitið því að setja aukinn kraft í baráttuna gegn Hezbollah samtökunum sem starfa þar í landi. Erlent 27. maí 2026 08:25
Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Ekki hafa verið fleiri aftökur í heiminum í 44 ár, eða frá árinu 1981. Á síðasta ári voru 2.707 einstaklingar teknir af lífi í sautján löndum. Þetta kemur fram í nýútkominni árlegri skýrslu Amnesty International um beitingu dauðarefsingarinnar. Erlent 18. maí 2026 07:58
Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Þrátt fyrir að vopnahlé eigi að gilda halda átök áfram milli Ísraels og Hezbolla í Líbanon. Hið minnsta sjö féllu í loftárás Ísraels í Saksakiyeh í dag. Á meðan bíða Bandaríkjamenn eftir því að Íranir bregðist við friðartillögum sínum. Erlent 9. maí 2026 20:05
Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ísraelar gerðu loftárás á Líbanon með það að markmiði að hæfa leiðtoga innan Hezbollah-samtakanna. Vopnahlé milli þeirra tók gildi um miðjan apríl. Erlent 6. maí 2026 19:09
Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í kvöld að vopnahlé milli Líbanon og Ísraels yrði framlengt um þrjár vikur. Hann segir Bandaríkjamenn auk þess hafa „algjöra stjórn“ á Hormússundi. Erlent 23. apríl 2026 22:38
Klukkan tifar og enn langt í land Ekki hefur verið boðað opinberlega til fundar í friðarviðræðum Bandaríkjanna og Íran nú þegar um þrír dagar eru eftir af tveggja vikna vopnahléi ríkjanna. Forseti íranska þingsins segir viðræður um að binda enda á stríðið hafa „miðað áfram“ en ríkin séu „langt frá lokaviðræðum.“ Erlent 19. apríl 2026 10:44
Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Donald Trump Bandaríkjaforseti segist bjartsýnn á að samningar náist milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael á næstu dögum en í gær tilkynnti hann um tíu daga vopnahlé á svæðinu sem gekk í gildi í gærkvöldi. Erlent 17. apríl 2026 07:49
Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Ísraelsmenn og Líbana hafa komist að samkomulagi um tíu daga vopnahlé sem á að taka gildi klukkan 22 í kvöld að íslenskum tíma. Erlent 16. apríl 2026 15:58
Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir leiðtoga Ísrael og Líbanon munu ræða saman í dag um mögulegt vopnahlé. Frá þessu greindi hann á Truth Social en nefndi leiðtogana ekki á nafn. Áður höfðu fjölmiðlar greint frá því að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sætti þrýstingu af hálfu Bandaríkjanna um að ganga að samningaborðinu. Erlent 16. apríl 2026 06:55
Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að viðræður við Írani myndu mögulega hefjast á ný á næstu dögum. Erlent 15. apríl 2026 06:44
Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Fulltrúar Ísraels og Líbanon áttu í sínum fyrstu diplómatísku viðræðum í meira en þrjá áratugi í dag. Markmið fundarins var að binda enda á átökin á milli Ísraels og Hezbollah-samtakanna. Erlent 14. apríl 2026 23:09
Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Forsvarsmenn Hezbollah segjast ekki munu beygja sig undir mögulegt samkomulag milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael. Sendiherrar ríkjanna munu funda í Washington í dag. Naim Kassem, leiðtogi Hezbollah, hefur hvatt ráðamenn í Líbanon til að ganga ekki til viðræðna við Ísrael. Erlent 14. apríl 2026 06:34
Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Stjórnvöld í Íran hafna þeirri fullyrðingu Bandaríkjamanna að tveir tundurspillar á vegum bandaríska sjóhersins hafi siglt í gegnum Hormússund. Bandaríkjaforseti segir það breyta engu fyrir sig hvort friðarsamkomulag náist við Íran. Erlent 11. apríl 2026 21:15
Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Þrátt fyrir vopnahlé í stríðinu í Íran hafa átök Ísraelsmanna og Hesbollah í Líbanon haldið áfram og ljóst að engin samstaða er um þann hluta vopnahléssamninganna. Erlent 10. apríl 2026 07:31
Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Tala látinna eftir að Ísraelsher gerði loftárás á miðborg Beirút í gær er komin yfir þrjú hundruð. Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísrael segir að herinn haldi áfram árásum á Hezbollah-samtökin þar til öryggi Ísraela er tryggt. Erlent 9. apríl 2026 23:51
Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Forseti íranska þingsins segir búið að rjúfa þrjú ákvæði í tíu punkta tillögu Írans sem kvað á um tveggja vikna vopnahlé í átökum við Bandaríkin og Ísrael. Utanríkisráðherra Írans segir Bandaríkin þurfa að velja milli vopnahlés eða áframhaldandi stríðs. Erlent 8. apríl 2026 20:08
Hormússund sagt lokað á ný Stjórnvöld í Íran hafa lokað Hormússundi á ný vegna árása Ísraels á Líbanon, að sögn ríkismiðils í Íran. Bandaríkin og Íran sögðust í gær hafa komist að samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé með því skilyrði að opnað yrði fyrir skipaumferð um sundið. Erlent 8. apríl 2026 17:13
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent