Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð Fjórir hermenn Ísraelshers létust og sjö særðust alvarlega í drónaárás Hezbollah á herstöð nærri Binyamina í gær. Um var að ræða hefndarárás vegna árása Ísraels á Beirút á fimmtudag, þar sem 22 létu lífið. Erlent 14. október 2024 06:48
Vill friðargæsluliðið út úr Suður-Líbanon strax Forsætisráðherra Ísraels krefst þess að framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna dragi friðargæslulið þeirra frá Líbanon nú þegar. Tugir ríkja hafa fordæmt árásir Ísraela á friðargæsluliðana undanfarna daga. Erlent 13. október 2024 13:15
Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Ísraelski herinn gerði í kvöld tvær banvænar loftárásir á Beirút, höfuðborg Líbanon. Heilbrigðisráðuneyti landsins segir 22 liggja í valnum og að minnsta kosti 117 hafa særst í árásunum en það gerir árásirnar þær banvænustu í miðborg Beirút hingað til í átökum undanfarins árs. Erlent 10. október 2024 23:09
Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Joe Biden Bandaríkjaforseti mun ræða við Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, í gegnum síma í dag um fyrirhugaðar árásir Ísrael á Íran. Erlent 9. október 2024 06:37
Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Forsvarsmenn ísraelska hersins sögðu í dag að Hashem Safieddine, einn af leiðtogum Hezbollah sem talið var að ætti að taka við af Hassan Nasrallah, væri líklega dáinn. Ekkert hefur heyrst af honum frá því Ísraelar gerðu loftárás í Dahiyeh, úthverfi Beirút, í síðustu viku. Erlent 8. október 2024 17:58
Ekkert lát á aðgerðum Ísraelshers gegn Hamas og Hezbollah Ísraelsher gerði umfangsmiklar árásir á Líbanon í gær og sendi meðal annars fjölda herþota gegn um 120 skotmörkum í suðurhluta landsins. Þá voru skömmu síðar gerðar árásir á úthverfin suður af Beirút síðar um daginn. Erlent 8. október 2024 06:40
Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Ekkert hefur heyrst til Esmail Qaani, yfirmanns Quds-sveitar íranska byltingarvarðarins, frá því að Ísraelar gerðu loftárásir á Beirút í síðustu viku. Erlent 6. október 2024 23:10
Lýsa nóttinni sem skelfilegri Upphafi skólaárs hefur verið frestað í Líbanon vegna öryggisógnar í landinu. Íbúar í Beirút lýsa nóttinni sem skelfilegri vegna loftárása Ísraelsmanna sem eru sagðar þær umfangsmestu á svæðinu frá upphafi átakanna. Erlent 6. október 2024 18:50
Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana Talið er að hátt í þrjú þúsund Hezbollah-liðar hafi látið lífið eða verið limlestir ásamt óþekktum fjölda óbreyttra borgara þegar fjöldi símboða sprakk þann 17. september síðastliðinn. Það var Mossad, ísraelska leyniþjónustan, sem bar ábyrgð á verknaðinum sem hafði verið í undirbúningi í um tvö ár. Erlent 6. október 2024 12:23
„Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Ísraelsher gerði umgangsmiklar loftárásir á Beirút snemma í morgun. Árásirnar eru samkvæmt líbönskum miðlum þær umfangsmestu á svæðinu frá upphafi átakanna. Þá létu minnst nítján lífið í loftárásum Ísraela á mosku í Gasa í nótt. Erlent 6. október 2024 10:23
Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Saeed Atallah Ali einn leiðtoga Hamas og fjölskylda hans létu lífið í loftárásum Ísraelshers á flóttamannabúðir í norðurhluta Líbanon í morgun. Erlent 5. október 2024 10:45
Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Ísraelar vörpuðu í morgun sprengjum á landamærastöð milli Líbanon og Sýrlands. Tugir þúsunda hafa flúið yfir landamærin þar á undanförnum dögum en yfirvöld í Líbanon segja um 1,2 milljónir manna hafa þurft að flýja heimili sín. Erlent 4. október 2024 11:00
Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Hachem Safieddine, sem búist var við að tæki við sem leiðtogi Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna, er sagður hafa fallið í eldflaugaáraás í úthverfi Beirút, höfuðborgar Líbanon. Erlent 4. október 2024 00:12
Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Utanríkisráðuneytinu er kunnugt um tvo íslenska ríkisborgara í Líbanon. Annar þeirra hefur óskað eftir aðstoð Borgaraþjónustu ráðuneytisins. Erlent 3. október 2024 21:09
Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Ísraelski herinn sagði íbúum 25 bæja og þorpa í sunnanverðu Líbanon í dag að yfirgefa heimili sín. Byggðirnar eru norður af Litani-á en hún markar svæði sem átti að vera nokkurs konar hlífðarsvæði samkvæmt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 2006 og þykir yfirlýsingin til marks um mögulega útvíkkun innrásar Ísraela í Líbanon. Erlent 3. október 2024 16:18
Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að hann væri ekki hlynntur því að Ísraelar gerðu loftárásir á kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Ísraelar eru sagðir íhuga slíkar árásir eftir að íranski herinn skaut um tvö hundruð skotflaugum að Ísrael á þriðjudaginn. Erlent 3. október 2024 12:02
Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Ísraelar gerðu í nótt árás á meinta vopnageymslu við hlið rússneskrar herstöðvar í Sýrlandi í nótt. Rússar reyndu að skjóta ísraelskar stýriflaugar niður en engin þeirra hæfði herstöðina sjálfa. Erlent 3. október 2024 09:59
Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Að minnsta kosti fimm eru látnir eftir loftárás Ísraelsher á heilsugæslu í Beirút, höfuðborg Líbanon, samkvæmt tilkynningu frá stjórnvöldum í Líbanon. Að sögn Ísraelshers notuðu liðsmenn Hezbollah heilsugæsluna. Erlent 3. október 2024 00:01
Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Arnór Sigurjónsson, sérfræðingur í varnarmálum, telur verulegar líkur á því að stórt stríð breiðist út í Miðausturlöndum. Erlent 2. október 2024 19:29
Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Bandaríska fréttavefsíðan Axios hefur eftir háttsettum embættismanni í Ísrael að þarlend yfirvöld kunni að hefna fyrir umfangsmikla árás Íran í gær með árás á olíuframleiðslu Írana og aðra mikilvæga innviði. Erlent 2. október 2024 10:25
Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Enn er fátt vitað um skaðann af umfangsmikilli eldflaugaárás Íran á Ísrael í gær en engar tilkynningar hafa borist um dauðsföll eða meiðsl á fólki. Einn lést á Vesturbakkanum. Erlent 2. október 2024 06:34
Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Forsvarsmenn ísraelska hersins hafa ákveðið að kalla út fjögur stórfylki af varaliði vegna átakanna við landamærin Ísrael og Líbanon. Hermennirnir eiga að verða sendir að landamærunum en Ísraelar hafa verið að gera loftárásir og áhlaup yfir landamærin þar sem sérsveitarmenn eru sagðir hafa farið inn í göng og hella sem eiga að hafa verið í notkun af vígamönnum Hezbollah. Erlent 1. október 2024 14:10
Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Ísraelsher hefur staðið í afmörkuðum hernaðaraðgerðum í Líbanon í alla nótt en lítið áhlaup var gert á landið í gær. Talsmenn hersins segja að verið sé að ráðast gegn ákveðnum skotmörkum innan landamæranna sem lúti stjórn Hezbollah-samtakanna. Erlent 1. október 2024 06:40
Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Ísraelsher hefur sent hermenn inn í Líbanon og lokað þar af ýmis svæði. Herinn segir áhlaupin beinast gegn hernaðarmannvirkjum Hezbollah í nokkrum þorpum nærri landamærunum. Erlent 30. september 2024 23:28
Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Naim Kassem, næstráðandi í Hezbollah samtökunum, hét því í ávarpi í morgun að berjast áfram gegn Ísrael. Þá sagði hann samtökin tilbúin til langvarandi átaka, þrátt fyrir að margir af æðstu leiðtogum Hezbollah hafi verið felldir af Ísraelum. Erlent 30. september 2024 13:02
Ísraelar herja á miðborg Beirút Ísraelar beina nú eldflaugaárásum á miðborg Beirút, höfuðborgar Líbanon. Erlent 29. september 2024 23:00
Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Að minnsta kosti fimmtán manns létu lífið í árásum Ísraelshers í Líbanon í nótt. Herinn greindi frá því í yfirlýsingu á Telegram að gerðar hefðu verið tugir árása á skotmörk úr röðum Hezbollah, tveimur dögum eftir að leiðtogi samtakanna var ráðinn af dögunum í loftárás. Erlent 29. september 2024 08:28
Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að með drápinu á Hassan Nasrallah hafi Ísrael verið að framfylgja réttlætinu fyrir hönd fórnarlamba hans. Ísrael sé í fullum rétti á að verja sig gegn Hezbollah, Hamas, Hútum í Jemen og öðrum hryðjuverkasamtökum sem fjármögnuð eru af Íran. Erlent 28. september 2024 19:52
Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Leiðtogi Hryðjuverksamtakanna Hezbollah var drepinn í loftárásum Ísraela á Beirút í nótt. Æðstiklerkur Íran segir alla múslima þurfa að standa með trúbræðrum sínum í Hezbollah. Talsmaður Ísraelshers segir samtökin draga Líbanon og nærliggjandi ríki inn í átök, sem Ísrael vilji ekki að breiðist út. Erlent 28. september 2024 18:10
Öllum flugferðum til Beirút aflýst Íranska flugfélagið, Iran Air, hefur aflýst öllum flugferðum sínum til og frá Beirút, höfuðborgar Líbanon, um óákveðinn tíma. Erlent 28. september 2024 14:24