Nektarmyndir gerðar óskýrar sjálfkrafa á Instagram Á Instagram verða nektarmyndir nú sjálfkrafa gerðar óskýrar í einkaskilaboðum. Unglingar undir 18 ára aldri munu ekki geta breytt stillingu á reikningu úr einkaham [e. private) nema með samþykki forráðamanna. Þetta eru meðal nýrra aðgerða sem Meta, eigandi Instagram, hefur tilkynnt um sem eiga að vernda ungmenna gegn kynlífskúgun (e. sextortion) og hótunum um dreifingu kynferðislegra mynda. Innlent 19. október 2024 12:43
Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Einstaklingur var handtekinn á Vopnafirði síðastliðinn miðvikudag grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrum sambýliskonu. Innlent 19. október 2024 12:41
Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Tveir sem fluttir voru á bráðamóttöku eftir bruna á Stuðlum í morgun eru vistmaður og starfsmaður á meðferðarheimilinu. Tæknideild lögreglu rannsakar nú vettvang brunans. Framkvæmdastjóri Barna- og fjölskyldustofu sem rekur Stuðla verst allra fregna. Innlent 19. október 2024 10:25
Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Þrír gistu í fangaklefa Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Einn þeirra hafði verið til vandræða í hverfi 105 en hinir tveir í miðbæ. Annar sló mann í andlitið með glasi og hinn var til vandræða fyrir utan skemmtistað. Innlent 19. október 2024 07:18
„Óásættanlegt að fyrrverandi starfsfólki sé haldið í spennitreyju“ Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir nýja umfjöllun Heimildarinnar um Namibíumálið svokallaða engu nýju ljósi varpa á málsatvik. „Mér þykir mjög miður og algjörlega óásættanlegt að fyrrverandi starfsfólki fyrirtækisins sé haldið í spennitreyju með réttarstöðu sakbornings í fimm ár án tilefnis.“ Innlent 18. október 2024 14:21
Ráðist á starfsfólk hótels Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt vegna einstaklings sem var sagður hafa ráðist á starfsfólk hótels í póstnúmerinu 105. Innlent 17. október 2024 06:26
Kveiktu á lögregluljósum fyrir ökumann sem skipti um dekk Þykk þoka sem takmarkar skyggni hefur legið yfir höfuðborginni í morgun. Lögreglumenn kveiktu á bláum ljósum til þess að verja ökumann sem skipti um dekk á bíl sínum í slæmu skyggni. Innlent 16. október 2024 09:30
Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Lögreglan í Serbíu handtók í gær leigumorðingja sem myrti mann í Belgrad fyrir skipulögð glæpasamtök árið 2021. Leigumorðinginn er sagður hafa dulbúið sig sem gamlan mann til þess að nálgast fórnarlambið. Erlent 16. október 2024 09:05
Mótmælendur unnu spellvirki á utanríkisráðuneytinu Málningu var slett á inngang og stétt fyrir utan utanríkisráðuneytið við Austurbakka á mótmælum Félagsins Íslands-Palestínu í morgun. Einn mótmælandi var handtekinn fyrir að fara ekki að fyrirmælum lögreglu. Innlent 15. október 2024 11:56
Páll skipstjóri hvergi nærri hættur Eva Hauksdóttir, lögmaður Páls Steingrímssonar fyrrverandi skipstjóra hjá Samherja, er að leggja lokahönd á kæru á niðurfellingu rannsóknar lögreglunnar á Norðurlandi eystra á meintri byrlun til ríkissaksóknara. Innlent 15. október 2024 10:49
„Það má berja barn á Íslandi ef það er ekki með íslenska kennitölu“ Lögregla sótti dreng frá Kólumbíu, Oscar Andres Florez Bocanegra, inn á salerni Flensborgar í gær og til stendur að flytja hann og föður hans úr landi í dag. Innlent 15. október 2024 06:31
Brutu leið inn á heimili fyrir sjúkralið að veita aðhlynningu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tvívegis kölluð til í gærkvöldi og nótt til að aðstoða sjúkralið, annars vegar vegna slyss sem varð inni á heimili og hins vegar til að brjóta leið inn á heimili þannig að sjúkralið gæti veitt aðhlynningu. Innlent 15. október 2024 06:13
Meintur nethrellir fær bætur vegna húsleitar Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manni sem grunaður var um að ofsækja konu miskabætur vegna húsleitar, handtöku og haldlagningu tækjabúnaðar í fleiri ár. Þær bætur sem hann fékk voru þó umtalsvert lægri en þær sem hann krafðist. Innlent 14. október 2024 22:55
Hnífstunguárás í gistiskýlinu Hnífstunguárásin sem greint var frá í morgun var framin í gistiskýli fyrir heimilislausa karlmenn á Lindargötu í Reykjavík. Það er önnur hnífstunguárásin sem framin er í gistiskýlum borgarinnar á örfáum mánuðum. Innlent 14. október 2024 13:56
Líkamsárás með hníf og ölvaðir unglingar Einn var handtekinn í gærkvöldi eða nótt í kjölfar líkamsárásar þar sem hníf var beitt. Áverkar árásarþola eru sagðir hafa verið minniháttar en engar frekari upplýsingar um málið er að finna í yfirliti lögreglu. Innlent 14. október 2024 06:26
Veitingahús mega vænta kæru eftir eftirlitsferðir lögreglu Ýmislegt reyndist óbótavant þegar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti skipulögðu eftirliti með veitingahúsum víða um borgina í nótt. Nokkur veitingahús eru sögð mega eiga von á kæru. Fjórir gistu fangageymslur lögreglunnar í nótt. Innlent 13. október 2024 07:24
Mótmæltu lausn manns sem var dæmdur fyrir manndráp í fyrra Á fjórða tug Pólverja komu saman í dag og mótmæltu því fyrir utan áfangaheimilið Vernd að nítján ára karlmaður sem hlaut tólf ára fangelsisdóm fyrir að hafa stungið mann til bana sé laus úr fangelsi einu og hálfu ári seinna. Innlent 12. október 2024 21:06
Dagbjört eyddi færslu eftir hörð viðbrögð Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, birti í dag færslu á Facebook þar sem hún tjáði sig um mál Yazan Tamimi og að félags- og vinnumarkaðsráðherra hafi hringt í ríkislögreglustjóra í tengslum við málið. Hún eyddi færslunni nokkrum klukkutímum eftir birtingu þegar hún vakti hörð viðbrögð í athugasemdakerfinu. Innlent 12. október 2024 20:32
Engin ummerki um ísbirni Leit að ísbjörnum, sem tilkynnt var um að væru mögulega á ferð í nágrenni Laugarfells, norðaustan við Snæfell í gær, hefur verið hætt. Innlent 12. október 2024 16:26
Karlmaður um sextugt lést í vinnuslysi Karlmaður um sextugt lést í vinnuslysi í Stykkishólmi í gær. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og hann var úrskurðaður látinn á vettvangi. Innlent 12. október 2024 14:24
Lokaleit að ísbjörnum með dróna Þyrla Landhelgisgæslunnar er ekki tiltæk í leit að ísbjörnum, sem erlendir ferðamenn tilkynntu að væru á slóðum Laugarfells, norðaustan við Snæfell í gær. Lokaleit verður því gerð með dróna í dag. Innlent 12. október 2024 11:18
Slysið í Stykkishólmi alvarlegt Lögreglan á Vesturlandi hefur alvarlegt slys sem varð í gær til rannsóknar. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang í gær en afturkölluð áður en hún komst á leiðarenda. Innlent 12. október 2024 10:02
Barn ógnaði lögreglumanni með eftirlíkingu af skammbyssu Sextán ára piltur var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt fyrir að miða skammbyssu að lögreglumanni. Byssan reyndist vera eftirlíking af skammbyssu. Innlent 12. október 2024 07:27
Lýsir hrottafengnu ofbeldi í Reykholti: Bundinn á meðan köldu vatni var bunað á hann Maltneskur karlmaður hefur lýst hrottafenginni meðferð af hálfu þriggja einstaklinga um nokkurra daga skeið í lok aprílmánaðar á þessu ári í Reykholti í Biskupstungum. Innlent 11. október 2024 16:18
Miður að misbrestur hafi orðið í þjónustu neyðarmóttökunnar Anne María Steinþórsdóttir, verkefnastjóri neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis, segir ljóst að misbrestur hafi orðið á þjónustu neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisbrota í júní síðasta sumar þegar kona leitaði þangað vegna kynferðislegs ofbeldis. Hún segir það miður. Innlent 11. október 2024 14:31
Staðreyndir og mýtur um kynferðisofbeldi Kynferðisofbeldi er alvarlegt vandamál í íslensku samfélagi. Þessi grein skoðar nýjustu tölfræði, algengar mýtur og aðgerðir til úrbóta. Skoðun 11. október 2024 13:32
Þyrlan kölluð út vegna slyss en afturkölluð Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í morgun en svo afturkölluð vegna slyss á Snæfellsnesi. Ásmundur Kristinn Ásmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að verið sé að vinna í málinu. Innlent 11. október 2024 11:45
„Innbrotsboð“ frá banka og angistarhljóð unglinga Tveir gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu nú í morgunsárið, sem sinnti fjölbreyttum útköllum í gærkvöldi og nótt. Innlent 11. október 2024 06:17
Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Tveir slösuðust í alvarlegu umferðarslysi á Norðausturvegi skammt frá bænum Hóli í Kelduhverfi stuttu fyrir klukkan 16. Í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðausturlandi kemur fram að vörubíll og fólksbíll hafi skollið saman. Innlent 10. október 2024 20:52
Kæra ferðaþjónustufyrirtæki fyrir framkvæmdir í íshellum Vatnajökulsþjóðgarður hefur kært ferðaþjónustufyrirtækið Niflheima til lögreglu fyrir framkvæmdir í íshellum í garðinum. Fyrirtækið hélt meðal annars við svelg í Breiðamerkurjökli þar sem erlendur ferðamaður lést í sumar. Innlent 10. október 2024 14:33