

Pallborðið
Pallborðið er umræðuþáttur fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar þar sem helstu málefni eru krufin til mergjar með viðmælendum.

Mælir með grænu ljósi á dánaraðstoð eftir erfiða reynslu
Sundkappinn Anton McKee ritar áhrifaríkan pistil þar sem hann hvetur fólk til að styðja frumvarp um dánaraðstoð.

Telur fara betur á að forseti sé kosinn í tveimur umferðum
Fyrrverandi þingmaður segir betri brag á því að hafa tvær umferðir í forsetakosningum svo forseti hafi meirihluta kjósenda á bak við sig. Aðeins einu sinni hefur forseti náð kjöri í fyrsta skipti með hreinum meirihluta atkvæða.

Segir könnunina vonbrigði fyrir Höllu
Almannatengill segir nýja könnun vonbrigði fyrir Höllu Tómasdóttur á meðan prófessor í stjórnmálafræði segir hana góðar fréttir fyrir nöfnu hennar Höllu Hrund Logadóttur. Það hafi verið sterkur taktískur leikur hjá Baldri Þórhallssyni og stuðningsfólki hans að láta framkvæma könnun á fylgi áður en helstu keppinautar stigu fram.

Telur Jón Gnarr geta verið kryptónít Katrínar
Jón Gnarr gæti truflað ímynd Katrínar Jakobsdóttur í kosningabaráttu um embætti forseta Íslands, segir Andrés Jónsson almannatengill. Hann líkir Jóni við skáldaða efnið kryptónítið sem veikir ofurhetjuna Súperman.

Katrín hafi mátað sig við forsetann frá tilkynningu Guðna
Andrés Jónsson almannatengill segir að samkvæmt sínum heimildum hafi Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra verið að íhuga framboð til forseta Íslands frá því á nýársdag, þegar Guðni Th. Jóhannesson forseti tilkynnti að hann byði sig ekki fram í þriðja sinn.

„Þessi stjórn er ekki að fara að springa í dag“
Prófessor í stjórnmálafræði segir líkurnar á því að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra bjóði sig ekki fram til forseta hverfandi. Eina sem gæti komið í veg fyrir það er ef ósætti er meðal ríkisstjórnarflokkanna um framboðið og möguleiki á að ríkisstjórnin springi.

Pallborðið: Forsetakapallinn og ríkisstjórn án Katrínar
Talið er næsta víst að Katrín Jakobsdóttir muni áður en vikan er úti gefa kost á sér til embætti forseta Íslands og um leið biðjast lausnar sem forsætisráðherra landsins.

Aukinnar umræðu þörf áður en dánaraðstoð verður að lögum
„Þetta er sá verknaður að hjálpa einstakling að binda enda á líf sitt á grundvelli upplýsts samþykkis; af ásetningi og að beiðni sjúklingsins, eða einstaklingsins.“

Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðstoðar
Læknafélag Íslands er mótfallið frumvarpi um dánaraðstoð sem nú liggur fyrir Alþingi. Þetta sagði Steinunn Þórðardóttir, formaður félagsins, í Pallborðinu á Vísi fyrr í dag.

Pallborðið: Eiga læknar að aðstoða fólk við að deyja?
Umsögnum um nýtt frumvarp um dánaraðstoð fjölgar nú dag frá degi en það miðar að því að tryggja einstaklingum réttinn til að velja að deyja með aðstoð lækna. Dánaraðstoð verður til umræðu í Pallborðinu klukkan 14 í dag, í beinni útsendingu á Vísi.

Biskupsefnin ekki stressuð á krossaskopi RÚV
Biskupskjör hefst 11. apríl næstkomandi og gestir Pallborðsins voru þremenningarnir sem tryggðu sér útnefningu þegar tilnefningar fóru fram: Guðrún Karls Helgudóttir, Guðmundur Karl Brynjarsson og Elínborg Sturludóttir.

Pallborðið: Biskup Íslands og staða þjóðkirkjunnar
Pallborðið verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14 í dag en til umræðu að þessu sinni verða embætti biskups Íslands og málefni Þjóðkirkjunnar.

Katrín noti mögulega orðróm um forsetaframboð í pólitískri skák
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gæti verið að nota umræðu um mögulegt forsetaframboð sitt til að styrkja pólitíska stöðu sína. Þessari tilgátu vörpuðu bæði Einar Bárðarson, umboðsmaður Íslands, og Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar og fyrrverandi forsetaframboðsstýra, í Pallborðinu á Vísi í dag.

Pallborðið um Katrínu Middleton: Yfirhylmingin alltaf verri en glæpurinn
Sannleikurinn að baki veikindum Katrínar Middleton, prinsessu af Wales, er að öllum líkindum töluvert skárri en yfirhylmingin sem gripið hefur verið til vegna veikindanna. Þetta er meðal þess sem fram kom í Pallborðinu á Vísi þar sem málið var rætt.

Hvar er Katrín?: Konunglegt klúður og forsetafabúleringar
Fólk út um allan heim veltir því nú fyrir sér hvað hefur drifið á daga Katrínar prinsessu af Wales og á litla Íslandi virðast menn bíða eftir því að nafna hennar Jakobsdóttir stígi undan feldi og tilkynni af eða á um forsetaframboð.

Frambjóðendur um Ísraelsleikinn: „Undir UEFA komið að taka þessa ákvörðun“
Frambjóðendur til formanns KSÍ eru á því að Ísland eigi að spila leikinn gegn Ísrael í umspili um sæti á EM í Þýskalandi í næsta mánuði.

Svona var Pallborðið með frambjóðendum til formanns KSÍ
Frambjóðendur til formanns Knattspyrnusambands Íslands mættust í Pallborðinu á Vísi í dag.

Ef það sé stefna Íslands að „hræða fólk í burtu“ þá sé það stefna allra
Ef menn vilja halda því fram að það sé stefna stjórnvalda á Íslandi í útlendingamálum „að hræða alla í burtu“, þá má segja það sama um stefnu nær allra ríkja Evrópu.

Bjarni skipað 23 vinkonur í sendiherrastöður miðað við höfðatölu
Heitar umræður sköpuðust um útlendingamál og stöðu fólks á Gasa, sem komið er með dvalarleyfi á Íslandi, í Pallborðinu á Vísi í gær. Samstaða náðist um fátt, fyrir utan að stytta þarf málsmeðferðartíma hjá hælisleitendum.

Tókust á um útlendingamálin í Pallborðinu
Útlendingamálin og staðan sem upp er komin varðandi einstaklinga sem fastir eru á Gasa en komnir með dvalarleyfi á Íslandi verða til umræðu í Pallborðinu á Vísi klukkan 14 í dag.

Mannsaldrar gætu liðið áður en næsta eldstöðvarkerfi vaknar
Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur telur að langur aðdragandi gæti orðið að því að næsta eldstöðvarkerfi vakni á Reykjanesskaga. Hann segir ótímabært að byggja upp varnargarða við Hafnarfjörð en nauðsynlegt sé að styrkja skipulagslög gagnvart eldgosavá.

Gagnrýndu viðmót Veðurstofunnar og sögðu sparkað í þá sem kvörtuðu
Haraldur Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, segir ríkið verja töluverðum fjármunum til veðurmála en þeir fari nánast allir til Veðurstofu Íslands. Við þær aðstæður sé eðlilegt að gera ríkar kröfur til stofnunarinnar, um að hún sinni því sem hún á að sinna.

Segja fyrirvara á næsta gosi við Grindavík geta orðið stuttan
Jarðvísindamenn Veðurstofu og Háskóla Íslands segja að líkurnar á nýju eldgosi norðan Grindavíkur teljist núna verulegar og vara við að fyrirvarinn geti orðið stuttur. Þeir segja líklegt að á næstu tveimur vikum eða jafnvel dögum nái kvikumagnið í kvikuhólfinu undir Svartsengi svipuðu rúmmáli og var fyrir síðasta eldgos þann 14. janúar.

Algjörlega ljóst að ekki sé búandi í Grindavík
Prófessor í jarðeðlisfræði segir að gera verði greinarmun á búsetu og vinnu í Grindavík. Við núverandi aðstæður sé algjörlega ljóst að ekki sé ekki hægt að búa í bænum, en að hans mati sé ásættanleg áhætta að hafa starfsemi þar. Hópstjóri náttúruvár segir að ekki sé tímabært að velta búsetu í bænum fyrir sér fyrr en kvika sé hætt að streyma inn undir Svartsengi.

Mikilvægt að ala ekki á ótta um möguleg eldgos
Jarðvísindamenn og bæjarstjóri Hafnarfjarðar segja fjölmiðla bera einhverja ábyrgð á umræðu um jarðhræringar og eldvirkni. Mikilvægt að sé að ala ekki á ótta.

Pallborðið á Vísi í dag: Er ógn eldgosa að færast nær höfuðborgarsvæðinu?
Ógn sem íbúum höfuðborgarsvæðisins kann að stafa af eldsumbrotum verður umræðuefni Pallborðsins á Vísi í dag. Kristján Már Unnarsson fær til sín bæjarstjórann í Hafnarfirði, Rósu Guðbjartsdóttur, og tvo jarðvísindamenn, Kristínu Jónsdóttur, jarðskjálftafræðing á Veðurstofu Íslands, og Magnús Tuma Guðmundsson, jarðeðlisfræðing við Háskóla Íslands.

Pallborðið: Veðurstofan sökuð um að brjóta lög og deila ekki gögnum
Veðurstofa Íslands safnar gríðarlegu magni gagna um veðurfar, jarðhræringar, vatnafar og loftslag, svo eitthvað sé nefnt. Sérfræðingar segja stofnunina hins vegar trega til að deila umræddum gögnum.

„Ef við þurfum að sleppa nammideginum, þá er það bara þannig“
Afar athyglisverðar og hispurslausar umræður voru í Pallborði Vísis þar sem farið var yfir hugsanlega þátttöku Íslands í Eurovision.

Deilan um þátttöku Íslands í Eurovision harðnar
Á Ísland að sniðganga Eurovision? Kiknar RÚV undan þrýstingi og hættir við þátttöku? Breytist allt með þátttöku Palestínumanns í Söngvakeppninni? Kristín Ólafsdóttir fer yfir Eurovision-deiluna með góðum gestum í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14.

Sjálfstæðismenn með mikla fyrirvara við frumvarp forsætisráðherra
Sjálfstæðisflokkurinn er sá flokkur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sem setur mestu fyrirvarana við eitt af lykilmálum forsætisráðherra, um Mannréttindastofnun. Frumvarpið hefur verið til umræðu í nefndinni í fimmtán vikur en samkomulag var um málið í stjórnarsáttmála. Fulltrúar stjórnarflokkanna ræddu þetta og fleiri mál í Pallborðinu í dag.