Konungurinn rak sex „einstaklega illa“ starfsmenn Maha Vajiralongkorn, konungur Taílands, hefur rekið sex starfsmenn sína nokkrum dögum eftir að hann svipti opinbera frillu sína öllum hennar titlum. Erlent 23. október 2019 15:42
Frilla konungs Taílands fallin í ónáð Maha Vajiralongkorn, konungur Taílands, hefur svipt opinbera frillu sína titlum hennar einungis mánuðum eftir að hún fékk titilinn "konungleg hjákona“. Erlent 22. október 2019 13:19
Fimm fílar drápust þar sem þeir reyndu að bjarga fílsunga Sex fílar, þar af einn þriggja ára fílsungi, drápust við foss í taílenskum þjóðgarði í gær. Erlent 6. október 2019 18:55
Íslenskur hjólreiðamaður slasaðist í Taílandi Íslenskur hjólreiðamaður á fimmtugsaldri varð fyrir því óláni um helgina að slasast í hjólreiðaslysi í taílensku borginni Chiang Mai. Innlent 22. ágúst 2019 13:19
Musk þarf að mæta fyrir dóm vegna ærumeiðinga Elon Musk, forstjóri bílaframleiðandans Tesla, hefur verið ákærður fyrir að kalla breskan kafara, sem kom drengjum sem festust í helli í Taílandi til bjargar, barnaníðing. Erlent 11. maí 2019 15:35
Konungur Taílands genginn út Konungskjölskyldan greindi frá þessu fyrr í dag, nokkrum dögum fyrir opinbera krýningarathöfn konungsins. Erlent 1. maí 2019 14:29
Íslenskur vert stórslasaður eftir mótorhjólaslys í Taílandi Frí á Hua Hin-eyju tók hörmulega stefnu eftir slys. Innlent 5. apríl 2019 12:38
Björguðu sex fílsungum úr leðju Starfsmenn Thap Lan þjóðgarðsins í Taílandi björguðu í gær sex fílsungum sem sátu fastir í stórum leðjupolli. Erlent 29. mars 2019 15:29
Vonsvikin prinsessa Tími Ubolratana, prinsessu og systur Taílandskonungs, sem forsætisráðherraefni Þjóðbjörgunar f lokks Taílands var stuttur og sagði prinsessan í gær að það ylli henni vonbrigðum. Erlent 14. febrúar 2019 07:15
Óvenjulegt framboð Taílensk prinsessa í framboð fyrir flokk Shinawatra-fjölskyldunnar gegn flokki herforingjastjórnarinnar. Framboðið er sagt algjörlega fordæmalaust. Erlent 9. febrúar 2019 07:00
Konungur fordæmir stjórnmálaáform systur sinnar Vajiralongkorn Taílandskonungur hefur fordæmt það sem hann kallar "óviðeigandi“ áform systur sinnar um að sækjast eftir forsætisráðherraembætti í landinu. Erlent 8. febrúar 2019 16:14
Prinsessa vill verða forsætisráðherra Taílenska prinsessan Ubolratana Mahidol hefur boðið sig fram til embættis forsætisráðherra fyrir flokkinn Raksa Chart. Erlent 8. febrúar 2019 09:05
Vonast til þess að saga sín hvetji aðrar konur til þess að vera hugrakkar og frjálsar Qunun fékk hæli í Kanada og lenti í Toronto á laugardag. Hún veitti sjónvarpsstöðinni ABC Australia viðtal og kvaðst vona að mál sitt gæti komið einhverjum breytingum af stað í heimalandi sínu en konur hafa afar takmörkuð réttindi í Sádi-Arabíu. Erlent 15. janúar 2019 10:15
Táningurinn sem flúði fjölskyldu sína komin til Kanada Utanríkisráðherra Kanada tók á móti Rahaf al-Qunun á flugvellinum í Toronto. Erlent 12. janúar 2019 18:37
Sameinuðu þjóðirnar biðla til Ástralíu Biðja yfirvöld Ástralíu um að íhuga að veita ungri konu frá Sádi-Arabíu hæli. Erlent 9. janúar 2019 11:32
Verður ekki send nauðug úr landi Mál Mohammed al-Qunun hefur vakið heimsathygli. Erlent 7. janúar 2019 12:50
„Hann vill drepa hana“ Rahaf Mohammed al-Qunun, átján ára sádiarabísk kona, hefur læst sig inni á hótelherbergi á alþjóðaflugvellinum í Bangkok í Tælandi. Erlent 7. janúar 2019 09:43
Versti stormur í áratugi skellur á taílenskum ferðamannastöðum Háannatími í ferðaþjónustunni á Taílandi stendur nú yfir. Erlent 4. janúar 2019 08:26
Eiginmennirnir látnir eftir árekstur tvennra hjóna á golfbílum Fólkið hafnaði ofan í á við áreksturinn og við það drukknuðu mennirnir. Erlent 27. desember 2018 07:53
Óttast að niðurstöðum fyrstu kosninganna frá valdaráni verði hagrætt Andstæðingar taílensku herforingjastjórnarinnar óttast að komandi kosningum, þeim fyrstu frá valdaráninu 2014, verði hagrætt. Erlent 18. desember 2018 08:30
Bitinn í typpið af snáki sem kom upp úr klósettinu Maðurinn var á klósettinu heima hjá sér í Bangkok þegar snákurinn kom þar upp í gegnum lagnirnar og beit manninn. Erlent 9. nóvember 2018 12:37
Leikmenn Leicester mættu í jarðarför eigandans í Tælandi | Myndir Leikmenn Leicester City lögðu upp í langt ferðalag eftir að hafa unnið sigur á Cardiff City á laugardaginn. Enski boltinn 5. nóvember 2018 23:30
Gjafmildi eigandi Leicester sem forðaðist sviðsljósið Eigandi Leicester City Vichai Srivaddhanaprabha lést á laugardagskvöld þegar þyrla hans brotlenti fyrir utan King Power leikvanginn í Leicester. Srivadddhanaprabha forðaðist sviðsljósið, var heiðraður af konungi Tælands og borgaði upp skuldir Leicester á innan við fimm árum. Enski boltinn 29. október 2018 12:00
"Enginn hefur gert þetta í mannkynssögunni“ Líklega hafa fá alþjóðleg fréttamál vakið jafn mikla athygli undanfarin ár heldur en björgunarafrekið í Tælandi í sumar þar sem tólf fótboltastrákum og þjálfara þeirra var bjargað af lítilli syllu djúpt inn í helli fullum af vatni. Innlent 12. október 2018 23:19
Lík bresks auðmanns og eiginkonu hans fundust í Taílandi Lík breska auðmannsins Alan Hogg og eiginkonu hans Nod Suddaen hafa fundist í norðurhluta Taílands. Erlent 25. september 2018 12:35
Kafarinn lögsækir Musk vegna barnaníðsummæla Unsworth var meðal þeirra sem stóðu að björgun fótboltastrákanna 12 og þjálfara þeirra úr Chiang Rai hellunum í Taílandi í sumar. Kafarinn hafði gagnrýnt áform Musk um að senda smákafbát á staðinn í þeim tilgangi að aðstoða við björgun drengjanna. Erlent 17. september 2018 20:24
Musk heldur barnaníðsásökunum á hendur kafaranum til streitu Elon Musk, stofnandi Tesla og SpaceX, virðist enn vera á þeirri skoðun að kafarinn Vern Unsworth, einn af þeim sem kom að björgunaraðgerðum í Taílandi í sumar þegar fótboltalið festist inn í helli, sé barnaníðingur. Erlent 5. september 2018 13:30
Misstu allt tímaskyn inni í hellinum og lýsa björguninni sem kraftaverki Fótboltastrákarnir tólf sem sátu fastir í helli í norðurhluta Taílands í meira en tvær vikur ásamt þjálfaranum sínum, Ekaphol Chantawong, segjast hafa misst allt tímaskyn á meðan þeir þurftu að dvelja í hellinum. Erlent 19. júlí 2018 11:45
Segir að allir fótboltastrákarnir hafi samþykkt að fara inn í hellinn Hinn 25 ára gamli Ake, fótboltaþjálfari strákanna tólf sem festust í helli í norðurhluta Taílands, ásamt þjálfaranum í síðasta mánuði, segir að allir strákarnir hafi samþykkt að fara inn í hellinn. Erlent 18. júlí 2018 11:58