Yfirmaður og sjóðstjórar framtakssjóða Stefnis segja upp störfum Forstöðumaður og sjóðstjórar framtakssjóða Stefnis, dótturfélags Arion banka, hafa allir sagt upp störfum. Brotthvarf þeirra kemur í kjölfar þess að til skoðunar hafði verið að koma á fót nýju sjálfstæðu félagi, sem myndi annast rekstur sérhæfðu sjóðanna og yrði meðal annars að hluta í eigu sömu starfsmanna, en slíkar hugmyndir fengu ekki brautargengi hjá lífeyrissjóðum, helstu eigendum framtakssjóðanna. Innherji 2. nóvember 2022 10:48
Sigurður og Haukur til Banana Sigurður Ingi Halldórsson og Haukur Magnús Einarsson hafa verið ráðnir til Banana. Sigurður verður framleiðslustjóri og Haukur vöruhússtjóri. Viðskipti innlent 2. nóvember 2022 09:15
Skúli hættir hjá Kviku eignastýringu og fer yfir til LSR Skúli Hrafn Harðarson, sjóðstjóri hlutabréfasjóða hjá Kviku eignastýringu síðustu ár, hefur sagt upp störfum hjá félaginu. Mun Skúli Hrafn í kjölfarið hefja störf hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR), stærsta lífeyrissjóði landsins, síðar á árinu, samkvæmt upplýsingum Innherja. Klinkið 2. nóvember 2022 05:31
Pétur og Sigurður Óli til Landsbankans Landsbankinn hefur stækkað teymi sitt í verðbréfamiðlun með ráðningu á tveimur nýjum starfsmönnum, samkvæmt upplýsingum Innherja. Klinkið 1. nóvember 2022 18:43
Sigurður hættir hjá Akta sjóðum Sigurður Kr. Sigurðsson, sem hefur verið hjá Akta frá árinu 2019, er hættur störfum hjá sjóðastýringarfyrirtækinu. Hann starfaði á eignastýringarsviði félagsins, sem var komið á fót fyrr á þessu ári, sem sérfræðingur í fjárfestatengslum og viðskiptaþróun. Klinkið 1. nóvember 2022 12:05
Hörður nýr forstöðumaður hjá Krónunni Hörður Már Jónsson hefur tekið við sem forstöðumaður stafrænnar þróunar hjá Krónunni. Sem forstöðumaður mun hann leiða áframhaldandi þróun og innleiðingu á starfrænum lausnum Krónunnar. Viðskipti innlent 1. nóvember 2022 11:28
Ráðin framkvæmdastjóri dk hugbúnaðar Hulda Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri dk hugbúnaðar. Hún gengdi áður stöðu sviðsstjóra sölu- og markaðssviðs hjá fyrirtækinu. Viðskipti innlent 1. nóvember 2022 09:44
Ásthildur nýr stjórnarformaður Empower Ásthildur Otharsdóttir hefur tekið við stjórnarformennsku hjá nýsköpunarfyrirtækinu Empower. Hún tekur við stjórnarformennsku sem fulltrúi Frumtaks Ventures sem leiddi 300 milljóna króna fjármögnun í Empower til að byggja upp hugbúnaðarlausnina, Empower Now. Viðskipti innlent 1. nóvember 2022 08:56
Edda til Akta Edda Guðrún Sverrisdóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur og regluvörður Akta sjóða. Edda kemur til Akta frá Kviku banka. Viðskipti innlent 31. október 2022 16:57
Skattakóngur Íslands nýr forstjóri Annata Magnús Norðdahl hefur verið ráðinn forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Annata og mun hefja störf 1.janúar næstkomandi. Viðskipti innlent 31. október 2022 12:48
Ráðin markaðsstjóri KEA hótela Gabríela Rún Sigurðardóttir hefur verið ráðin sem markaðsstjóri KEA hótela. Viðskipti innlent 31. október 2022 11:09
Stjörnuspá Siggu Kling snýr aftur á Vísi Í næstu viku snýr Sigríður Klingenberg, best þekkt sem Sigga Kling, aftur á Lífið á Vísi. Stjörnuspá hennar mun birtast á vefnum í hverjum mánuði. Lífið 28. október 2022 12:01
Renata nýr framkvæmdastjóri hjá Arctic Adventures Renata Blöndal hefur verið ráðin til ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Adventures þar sem hún tekur við stöðu framkvæmdastjóra sölu- og þjónustu. Viðskipti innlent 28. október 2022 08:04
Hrafnhildur skipuð hagstofustjóri Hrafnhildur Arnkelsdóttir hefur verið skipuð í embætti hagstofustjóra. Alls bárust fjórtán umsóknir í embættið en þrír drógu umsókn sína til baka. Innlent 27. október 2022 19:53
Sjö ný til Stefnis Sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir hefur ráðið til sín sjö nýja starfsmenn sem munu starfa í nýju teymi sem ber heitið Greining, sala og samskipti. Framkvæmdastjórinn segir ánægjulegt að fá þennan liðsauka til sín. Viðskipti innlent 27. október 2022 18:04
Fimm nýir stjórnendur ráðnir til Geo Salmo Fiskeldisfyrirtækið Geo Salmo í Ölfusi hefur ráðið til sín fimm nýja stjórnendur, þau Evu Dögg Jóhannesdóttur, Eyþór Helgason, Karl Kára Másson, Garðar Sigþórsson og Jóhannes Gíslason. Viðskipti innlent 27. október 2022 14:05
Hafsteinn leiðir nýtt svið hjá Advania Hafsteinn Guðmundsson hefur tekið sæti í framkvæmdastjórn Advania og leiðir nýtt svið fyrirtækisins sem annast þjónstu og ráðgjöf við innviði upplýsingatækninnar. Viðskipti innlent 27. október 2022 13:35
Fjórir hugbúnaðarsérfræðingar til Empower Nýtt starfsfólk nýsköpunarfyrirtækisins Empower vinnur að þróun hugbúnaðarlausnarinnar Empower Now, sem fer á alþjóðlegan markað á næsta ári. Lausnin gerir fyrirtækjum og stofnunum á alþjóðavísu kleift að ná yfirsýn yfir stöðu jafnréttis og fjölbreytni, setja mælanleg markmið og innleiða örfræðslu fyrir starfsfólk í gegnum stafrænar leiðir. Viðskipti innlent 27. október 2022 11:22
Ráðin framkvæmdastjóri Loftslagsráðs Þórunn Wolfram Pétursdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Loftslagsráðs. Hún er starfandi sviðsstjóri hjá Landgræðslunni og hefur verið staðgengill landgræðslustjóra. Þórunn mun hefja störf hjá Loftslagsráði í byrjun næsta árs. Innlent 27. október 2022 11:21
Notar eiginmanninn sem tilraunadýr í bakstrinum „Ég ákvað að prófa að sækja um í skólanum Le cordon bleu, fékk inn og svo vorum við flutt til London rúmum tveimur mánuðum síðar,“ segir Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir í viðtali við Makamál. Makamál 26. október 2022 10:08
Ármann og Magnús ganga til liðs við Rexby Íslenska sprotafyrirtækið Rexby hefur ráðið Ármann Kristjánsson og Magnús Skúlason til sín. Ármann mun bera ábyrgð á notendaupplifun fyrirtækisins en Magnús við forritun. Viðskipti innlent 24. október 2022 22:04
Sunak nýtt andlit á gömul gildi Kjör Rishis Sunak sem leiðtoga breska Íhaldsflokksins markar tímamót á ýmsan hátt. Hann verður yngsti forsætisráðherrann í meira en tvær aldir og sá fyrsti sem er ekki hvítur. Inn við beinið er Sunak þó klassískur íhaldsmaður sem dáir Margaret Thatcher og aðhyllist lága skatta. Erlent 24. október 2022 16:01
Berglind Rán frá Orku náttúrunnar til ORF Líftækni Berglind Rán Ólafsdóttir hefur verið ráðin forstjóri ORF Líftækni. Hún hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar. Viðskipti innlent 21. október 2022 14:16
Eiríkur ráðinn framkvæmdastjóri Sleggjunnar Eiríkur Þór Eiríksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Sleggjunar ehf. Viðskipti innlent 21. október 2022 09:51
Ásmundur Einar Daðason skipar þrjá nýja skrifstofustjóra Þrír nýir skrifstofustjórar hafa verið skipaðir hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Ráðherra, Ásmundur Einar Daðason hefur skipað Önnu Tryggvadóttur, Árna Jón Árnason og Þorstein Hjartarson í embættin samkvæmt nýju skipulagi ráðuneytisins. Skipað er í embættin til fimm ára. Ekki var skipað í embætti skrifstofustjóra gæða- og eftirlitsmála vegna fækkunar skrifstofa hjá ráðuneytinu. Viðskipti innlent 20. október 2022 18:17
Jón Skaftason nýr stjórnarformaður Sýnar Jón Skaftason, forsvarsmaður Gavia Invest, er nýr stjórnarformaður Sýnar. Þrír af fimm stjórnarmönnum eru hluti af hópi einkafjárfesta sem hafa eignast stóran hlut í fyrirtækinu. Hluthafafundur fór fram í morgun. Viðskipti innlent 20. október 2022 12:24
Hættir sem ferðamálastjóri: „Langar til að klára starfsævina í ferðaþjónusturekstri“ Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri hefur ákveðið að láta af störfum sem ferðamálastjóri um áramót. Hann tilkynnti starfsfólki Ferðamálastofu um ákvörðun sína á starfsmannafundi í morgun. Viðskipti innlent 20. október 2022 11:21
Rún nýr samskiptastjóri Veitna Rún Ingvarsdóttir hefur verið ráðin samskiptastjóri Veitna. Rún kemur inn í teymi sérfræðinga sakskipta- og samfélags hjá Orkuveitu Reykjavíkur (OR) sem er móðurfélag Veitna. Viðskipti innlent 20. október 2022 10:01
Guðmundur hættir sem forstjóri Varðar Guðmundur Jóhann Jónsson hefur tilkynnt stjórn félagsins að hann hyggist láta af störfum hjá félaginu á næstu mánuðum. Guðmundur hefur verið forstjóri Varðar í rúm sextán ár. Viðskipti innlent 20. október 2022 09:02
Nýr framkvæmdastjóri Sæferða kynntur til leiks Nýr framkvæmdastjóri Sæferða í Stykkishólmi hefur verið ráðinn en það er hún Jóhanna Ósk Halldórsdóttir. Jóhanna tekur við starfinu af Gunnlaugi Grettissyni sem hefur verið framkvæmdastjóri síðan 2015. Viðskipti innlent 19. október 2022 18:21