Sigurður hættir sem framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs Sigurður Garðarsson hefur beðið um að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs. Aríel Pétursson, formaður stjórnar ráðsins, tekur við störfum Sigurðar þar til nýr framkvæmdastjóri er ráðinn. Viðskipti innlent 23. ágúst 2022 14:06
Gauti ráðinn fulltrúi sveitarstjóra á Djúpavogi Gauti Jóhannesson hefur verið ráðinn fulltrúi sveitarstjóra á Djúpavogi. Staðan var auglýst þann 12. júlí síðastliðinn en sjö umsóknir bárust. Innlent 23. ágúst 2022 10:07
Stefán nýr ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins Stefán Guðmundsson, viðskiptafræðingur hefur verið skipaður ráðuneytisstjóri umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins af Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfis-, orku- og lofslagsráðherra. Stefán tekur við embættinu 1. september. Innlent 22. ágúst 2022 16:47
Sigríður Auður til Orkuveitunnar Sigríður Auður Arnardóttir hefur verið ráðin til Orkuveitu Reykjavíkur sem stjórnandi á nýju fagsviði Samhæfingar og stjórnsýslu sem heyrir undir forstjóra. Viðskipti innlent 22. ágúst 2022 13:44
Sigurður Bjarni nýr fjármálastjóri Keilis Sigurður Bjarni Hafþórsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs. Hann tekur við stöðunni af Idu Jensdóttur og hefur þegar hafið störf. Viðskipti innlent 22. ágúst 2022 11:52
Frosti kaupir þriðjungshlut í Wunder Werkz Hönnuðurinn Frosti Gnarr hefur keypt þriðjungshlut í bandarísku hönnunarstofunni Wunder Werkz. Frosti hefur nú þegar opnað útibú fyrir evrópsk verkefni Wunder Werkz á Íslandi. Klinkið 20. ágúst 2022 10:01
Njörður kveður og Ólína tekur við starfinu Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, skólameistari og borgarfulltrúi, hefur verið ráðin deildarforseti við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst. Ólína tekur við af Nirði Sigurjónssyni sem hefur gegnt starfinu síðustu tvö ár. Innlent 19. ágúst 2022 13:31
Fjórtán sóttu um stöðu forstjóra Menntamálastofnunar Fjórtán einstaklingar sóttu um embætti forstjóra Menntamálastofnunar til Mennta- og barnamálaráðuneytisins. Meðal umsækjenda er Thelma Clausen Þórðardóttir, settur forstjóri Menntamálastofnunar. Innlent 17. ágúst 2022 17:04
Tugir sækjast eftir fjórum skrifstofustjóraembættum Alls bárust Mennta- og barnamálaráðuneytinu 97 umsóknir um fjögur embætti skrifstofustjóra í nýju skipulagi ráðuneytisins. Innlent 17. ágúst 2022 16:57
Tekur við stöðu verslunarstjóra í Hrísey Díana Sveinbjörnsdóttir hefur verið ráðin verslunarstjóri Hríseyjarbúðarinnar. Guðrún Þorbjarnardóttir sem gegndi stöðunni til bráðabirgðar hættir 1. september. Viðskipti innlent 17. ágúst 2022 09:25
Helga Björg, Ingigerður og Páll Vignir í nýjum hlutverkum hjá Sýn Helga Björg Antonsdóttir, Páll Vignir Jónsson og Ingigerður Guðmundsdóttir hafa ýmist verið ráðin til starfa hjá Sýn eða taka við nýjum störfum hjá fyrirtækinu. Helga Björg hefur verið ráðin markaðsstjóri Vodafone, Ingigerður sem nýr öryggis- og gæðastjóri og Páll Vignir nýr forstöðumaður fjölmiðlalausna. Viðskipti innlent 16. ágúst 2022 14:09
Hættir hjá Landspítala og verður leiðtogi öldrunarþjónustu hjá borginni Anna Sigrún Baldursdóttir, framkvæmdastjóri á Landspítala, hefur verið ráðin skrifstofustjóri og leiðtogi öldrunarmála hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Síðustu níu ár hefur hún starfað sem aðstoðarmaður forstjóra Landspítala og síðar framkvæmdastjóri á Landspítala. Innlent 16. ágúst 2022 10:47
Hefur störf sem hagfræðingur BSRB Heiður Margrét Björnsdóttir hefur hafið störf sem hagfræðingur BSRB – heildarsamtaka starfsfólks í almannaþjónustu. Í tilkynningu segir að um sé að ræða nýja stöðu á skrifstofu samtakanna. Viðskipti innlent 16. ágúst 2022 08:22
Hugsmiðjan ræður til sín átta nýja starfsmenn Hönnunar- og hugbúnaðarhúsið Hugsmiðjan hefur ráðið til sín átta nýja starfsmenn. Þeir eiga það allir sameiginlegt að vera fagfólk í sínu fagi. Viðskipti innlent 15. ágúst 2022 16:02
Ólafur hættir sem hagstofustjóri eftir fjórtán ára starf Ólafur Hjálmarsson, sem hefur gegnt embætti hagstofustjóra samfellt frá árinu 2008, hefur hætt störfum hjá Hagstofu Íslands. Óskaði hann eftir því að verða færður til í starfi og mun Ólafur taka við sem skrifstofustjóri fjármálaráðs um næstkomandi mánaðarmót. Klinkið 15. ágúst 2022 08:09
Eggert Þór Kristófersson ráðinn forstjóri Landeldis Eggert Þór Kristófersson hefur verið ráðinn í starf forstjóra Landeldis hf. Hann mun hefja störf 17. ágúst næstkomandi. Innlent 13. ágúst 2022 09:59
Inga Hrefna ráðin aðstoðarmaður utanríkisráðherra Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra. Innlent 12. ágúst 2022 17:26
Ellert hættir hjá Gildi og fer yfir til Marels Ellert Guðjónsson, sem hefur verið sjóðstjóri í eignastýringu Gildis lífeyrissjóðs frá því í ársbyrjun 2020, hefur látið að störfum hjá sjóðnum og ráðið sig yfir til Marels. Þar mun hann gegna starfi fjárfestatengils hjá stærsta félaginu í Kauphöllinni. Klinkið 10. ágúst 2022 15:49
Drífa segir af sér embætti forseta ASÍ Drífa Snædal hefur sagt af sér embætti forseta Alþýðusambands Íslands. Vegna átaka innan verkalýðshreyfingarinnar kveðst hún ekki treysta sér til að vinna áfram innan sambandsins. Skynsamlegra sé því vegna kjaraviðræðna og undirbúningi þingsins, að hætta sem fyrst. Innlent 10. ágúst 2022 09:54
Linda Karen nýr formaður Dýraverndarsambands Íslands Linda Karen Gunnarsdóttir, hestafræðingur, var um helgina kjörin formaður Dýraverndarsambands Íslands á aðalfundi sambandsins. Linda tekur við af Hallgerði Hauksdóttur sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Innlent 9. ágúst 2022 23:53
Elmar til Ísafold Capital Partners Elmar Eðvaldsson hefur gengið til liðs við sjóðsstýringafyrirtækið Ísafold Capital Partners hf. en hann starfaði áður sem sjóðsstjóri í eignastýringu Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Viðskipti innlent 9. ágúst 2022 17:40
Falur körfuboltamaður til Advania Falur Harðarson hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður rafrænna viðskipta og skólalausna hjá Advania. Hann kemur frá Samkaupum þar sem hann hefur starfað í þrettán ár, fyrst sem mannauðsstjóri og frá 2018 sem forstöðumaður rekstrar- og mönnunardeildar. Viðskipti innlent 9. ágúst 2022 10:14
Einar ráðinn sveitarstjóri Skaftárhrepps Einar Kristján Jónsson er næsti sveitarstjóri Skaftárhrepps. Ráðning hans verður staðfest á fundi sveitarstjórnar næstkomandi þriðjudag. Innlent 7. ágúst 2022 13:58
Linda Blöndal hætt á Hringbraut Linda Blöndal sjónvarpsmaður á Hringbraut hefur sagt upp hjá fjölmiðlafyrirtækinu Torgi sem auk Hringbrautar rekur fjölmiðlana Fréttablaðið og frettabladid.is. Innlent 5. ágúst 2022 14:19
Ragnheiður til Keahótela Ragnheiður Hauksdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs hjá Keahótelum ehf. Viðskipti innlent 3. ágúst 2022 16:12
Egill til Arctic Green Energy Egill Júlíusson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá Arctic Green Energy á Íslandi. Hann kemur til félagsins frá Landsvirkjun. Viðskipti innlent 3. ágúst 2022 16:07
Jón Mikael ráðinn framkvæmdastjóri notendalausna Origo Jón Mikael Jónasson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri notendalausna hjá Origo og mun hefja störf í byrjun næsta mánaðar. Hann kemur frá Ölgerðinni þar sem hann hefur starfað síðustu tuttugu ár. Viðskipti innlent 3. ágúst 2022 10:26
Pálmi Guðmundsson hættur hjá Símanum Pálmi Guðmundsson, dagskrárstjóri Símans, er hættur hjá fyrirtækinu eftir sjö ára starf. Hann sagði upp að eigin ósk á fimmtudag og hefur ekki gefið frekari skýringar á uppsögninni. Viðskipti innlent 2. ágúst 2022 13:29
Gunnar Axel nýr bæjarstjóri Voga Gunnar Axel Axelsson, viðskipta- og stjórnsýslufræðingur og deildarstjóri á efnahagssviði Hagstofu Íslands hefur verið ráðinn bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga og tekur við af Ásgeiri Eiríkssyni sem var bæjarstjóri Voga í rúm tíu ár. Alls sóttu fjörutíu umsækjendur um starfið. Innlent 1. ágúst 2022 20:05
Guðríður Haraldsdóttir kveður Birtíng Guðríður Haraldsdóttir blaðamaður og prófarkalesari lauk sínum síðasta vinnudegi hjá Birtíngi í dag, hún segist kveðja með trega og þakklæti eftir tuttugu og tvö ár hjá fyrirtækinu. Innlent 29. júlí 2022 19:15