Fréttastjóri

Kolbeinn Tumi Daðason

Kolbeinn Tumi er fréttastjóri fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Vinna að því að uppfylla kröfur MAST

Hvalur hf. vinnur að því að uppfylla skilyrði Matvælastofnunar til að Hvalur 8 fái aftur að halda á miðin. Hvalur 9 lagði frá bryggju síðdegis í gær eftir brælu dagana á undan.

Boða skyttur Hvals á skotæfingu á sjó

Matvælastofnun hefur tjáð Hval hf. að hvalveiðiskipið Hvalur 8 megi fara aftur á veiðar að uppfylltum skilyrðum. Meðal þeirra eru þau að skotæfing fari fram á sjó til að sýna fram á hæfni skyttu.

Enginn sport­veiði­maður og full­viss um stuðning Ís­lendinga

Kristján Loftsson, forstjóri og stærsti eigandinn í Hval hf., er sannfærður um að íslenskt samfélag standi með honum í baráttunni fyrir áframhaldandi hvalveiðum. Ekki megi taka hvalveiðar út fyrir sviga heldur þurfi að skoða hlutina í samhengi. Jafnvel kíkja í sláturhúsin til samanburðar. Hann kann vel að meta gott hvalkjöt en er enginn sportveiðimaður enda fari hann aldrei til veiða.

Vilja stækka Tennis­höllina og bæta við sex padel-völlum

Skipulagsráð Kópavogs hefur samþykkt tillögu að breyttu deiliskipulagi við Tennishöllina í Kópavogi. Þar stendur til að byggja húsnæði með sex padel-völlum. Framkvæmdastjóri Tennishallarinnar segir mikinn áhuga á íþróttinni sem sé sérstaklega aðgengileg og félagsvæn.

Taldi særðri dóttur sinni trú um að þau ættu í ástar­sam­bandi

Rúmlega fertugur karlmaður og barnaníðingur á suðvesturhorni landsins hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga fimmtán ára dóttur sinni ítrekað. Hann endurnýjaði kynni við dóttur sína vitandi að hann glímdi við barnagirnd. Hann þarf að greiða dóttur sinni sex milljónir króna í miskabætur.

Mikill meiri­hluti lands­manna studdi ekki að­gerðirnar

Sjö af hverjum tíu landsmönnum studdu ekki aðgerðir tveggja mótmælenda sem hlekkjuðu sig við mastur tveggja hvalveiðiskipa í Reykjavíkurhöfn fyrr í september. Yngra fólk var frekar fylgjandi mótmælum en það eldra.

Braut á bestu vinkonu sinni meðan hún svaf

Ungur karlmaður hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa brotið á bestu vinkonu sinni í lok desember árið 2021. Karlmaðurinn „puttaði“ konuna og sleikti á henni kynfærin á meðan hún lá sofandi í sófanum og varð einskis vör vegna ölvunar og svefndrunga.

Sjá meira