Öxnadalsheiði, Víkurskarði og hringveginum í Öræfum lokað vegna veðurs Vegum á landinu fer fjölgandi sem lokað hefur verið umferð um sökum veðurs. Gular viðvaranir eru um stærstan hluta landsins en þó ekki á suðvesturhorninu, Vesturlandi og verstari hluta Vestfjarðarkjálkans. 19.12.2019 16:08
Köld vatnsgusa í andlit foreldra barna á biðlista á Seltjarnarnesi Óhætt er að segja að foreldrar barna á Seltjarnarnesi sem bíða eftir daggæslu- eða leikskólaplássi fyrir börnin sín finnist jólagjöfin frá bænum súr þetta árið. 19.12.2019 15:27
Meðaltal heildarlauna hjá VR 666 þúsund krónur Heildarlaun félagsmanna VR voru að meðaltali 666 þúsund krónur í september síðastliðnum og höfðu þá hækkað um 2,1% á sjö mánaða tímabili eða frá febrúar. Miðgildi heildarlauna hækkaði um 2,5% á sama tímabili og var 615 þúsund. 19.12.2019 15:15
Hinn grunaði áfram í fjögurra vikna gæsluvarðhaldi Karlmaður um fimmtugt, sem grunaður er um aðkomu að andláti manns sem féll fram af svölum við Skyggnisbraut í Grafarholti þann 8. desember, var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. 19.12.2019 14:54
Rausnarlegir bónusar IKEA í Noregi þekkjast ekki á Íslandi Um þrjú þúsund starfsmenn IKEA í Noregi eiga von á rúmlega hálfri milljón króna í jólabónus þetta árið. Um einkaframtak stjórnenda sænsku húsgagnakeðjunnar er að ræða. 19.12.2019 14:24
Lækkun greiðsluþátttöku sjúklinga: Komugjöld sjúklinga lækka úr 1200 í 700 krónur um áramótin Komugjöld í heilsugæslu verða felld niður í áföngum, niðurgreiðslur sjúkratrygginga fyrir tannlæknisþjónustu og lyf verða auknar og sömuleiðis vegna tiltekinna hjálpartækja og reglur um ferðakostnað verða rýmkaðar. 19.12.2019 14:13
Barnavernd brást skyldu sinni og málsmeðferðin fór úrskeiðis Barnavernd Reykjavíkur brást skyldu sinni í Shaken-baby máli en kveðinn var upp dómur í morgun í skaðabótamáli sem foreldrar og tvö börn þeirra höfðuðu á hendur íslenska ríkinu. 19.12.2019 13:26
Jarðskjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Jarðskjálfti að stærð 3,5 varð við Fagradalsfjall á tólfta tímanum í dag. Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að skjálftinn hafi fundist vel á höfuðborgarsvæðinu. 19.12.2019 11:57
Munar hátt í tvö þúsund krónum á Quality Street dósunum Mikill verðmunur var á jólamat í verðkönnun ASÍ sem framkvæmd var þriðjudaginn 17. desember. Oft var 1500 til 2000 króna verðmunur á kílóverði af kjöti og getur því munað háum upphæðum þegar kaupa þarf mikið magn af kjöti og mögulega fleiri en eina tegund. 19.12.2019 11:09
Enn stelur Kertasníkir senunni þótt hann sé ekki kominn til byggða Fimmta árið í röð reyndist Kertasníkir hlutskarpastur jólasveinanna þegar kemur að vinsældum en 29% landsmanna átján ára og eldri tilnefndu Kertasníki sem sinn uppáhalds jólavein. 19.12.2019 10:58