Annie Mist útskýrir af hverju þátturinn var tekinn tímabundið úr birtingu Annie Mist Þórisdóttir Crossfit-stjarna segir það ekki hafa haft neitt með athugasemdir Hinriks Inga Óskarssonar að gera að fjórði uppgjörsþátturinn af Reykjavík Crossfit Championship var tekinn tímabundið úr birtingu. 3.11.2019 20:13
Kompás: Vandaður fréttaskýringaþáttur fær nýtt heimili - á Vísi Á mánudag hefur göngu sína vandaður fréttaskýringaþáttur í umsjón fréttahaukanna Erlu Bjargar Gunnarsdóttur, Jóhanns K. Jóhannssonar og Nadine Guðrúnar Yaghi en framleiðandi hans er Arnar Már Jónmundsson. Þátturinn verður birtur á Vísi og Maraþoni Stöðvar 2 auk þess sem umfjöllunarefninu verða gerð skil í fréttatímum Stöðvar 2 og Bylgjunnar. 3.11.2019 13:00
Segir Landsbjörg nýta sér neyð og veikindi einstaklinga Ef þú kæri lesandi átt leið í söluturn, vídeoleigu, veitingahús eða bar og sérð þar fólk fast í spilakössum, vinsamlega þakkaðu spilafíklinum og knúsaðu hann fyrir að standa vaktina og fyrir að leggja líf sitt og mögulega fjölskyldu sína undir í þessum leik upp á líf og dauða. 3.11.2019 10:00
Annie tók Crossfit þátt úr birtingu eftir kaldar kveðjur Hinriks Inga Fjórði þáttur Annie Mistar Þórisdóttur um Reykjavík Crossfit Championship leikana sem haldnir voru í Laugardalshöll í maí hefur verið tekinn úr birtingu. Það gerðist í kjölfar harðar gagnrýni Hinriks Inga Óskarssonar. 2.11.2019 19:15
Sjá svart og hvítt í málinu sem aðrir leikarar þora varla að hafa opinbera skoðun á Leikkonurnar Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir sjá svart og hvítt þegar kemur að nýföllum dómi í máli Atla Rafns Sigurðarsonar leikara gegn Borgarleikhúsinu og leikstjóranum Kristínu Eysteinsdóttur. 1.11.2019 23:35
Biskup endursendir dularfullt bréf séra Þóris Ekkert verður af því að kirkjuráð opni bréf frá séra Þóri Stephensen ári eftir andlát hans. Kirkjuráð kom saman á fundi í dag og komst að þeirri niðurstöðu að hið rétta í stöðunni væri að endursenda bréfið. 1.11.2019 22:56
Hlutabréfamarkaðir á Norðurlöndum liggja niðri Hlutabréfamarkaðir Nasdaq á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum liggja niðri vegna tæknilegrar bilunar. 1.11.2019 11:04
Elsa nýr framkvæmdastjóri Pírata Elsa Kristjánsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Pírata. Hún tekur við starfinu af Erlu Hlynsdóttur og hefur störf þann 1. febrúar næstkomandi. 1.11.2019 10:52
Katrín heiðraði Rauðsokkur, Rótina og Knúz Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs í gær. 1.11.2019 10:25
Brosmild, traust og glaðvær manneskja þrátt fyrir veikindin Fjölskylda Guðrúnar Maríu Gunnarsdóttur hefur hrundið af stað söfnun til að fjármagna flutning Guðrúnar Maríu til Íslands og standa undir útfararkostnaði. 31.10.2019 16:45